3.990,-
Afsakið!
Það er ekki nóg til á lager fyrir pöntunina þína.
DRACAENA MARGINATA
Plast er sá efniviður sem við hjá IKEA notum hvað mest og við munum halda því áfram. Það er sterkt, endingargott, létt og fjölhæft. Plastið er í ýmsum hlutverkum hjá okkur, oft er það aðalefnið í vörunni eða í yfirborðsefnum eins og málningu og þynnu en einnig í íhlutum eins og skrúfum og hillupinnum. Það þarf að gæta að því hvaða áhrif plast hefur á umhverfið og IKEA tekur þeim áskorunum mjög alvarlega. Sem hluti af vegferð okkar til hringrásarkerfis, og áætlun okkar um að víkja frá notkun efniviðar sem byggður er á hráolíu, vinnum við hörðum höndum að því að breyta öllu plasti sem notað er í vörurnar okkar í plast sem unnið er úr endurunnum og/eða endurnýjanlegum hráefnum.
Plast er að mestu leyti framleitt úr olíu eða gasi sem eru óendurnýjanleg jarðefni. Þessar auðlindir endurnýjast ekki og munu að endingu tæmast. Við höfum sett okkur það markmið að fyrir 2030 verði allt plast sem notað er í vörurnar okkar vera unnið úr endurnýjanlegum eða endurunnum efnum. Endurnýjanlegt plast er unnið úr efnum eins og jurtaolíu, maís, hveitikorni eða sykurreyr. Endurunnið plast gerir okkur kleift að gefa ólífbrjótanlegum vörum eins og PET-flöskum annað líf í stað þess að enda í landfyllingu. Endurunnin efni gera það að verkum að við þurfum minna að reiða okkur á olíu sem hráefni. Eins og er eru meira en 40% af plastvörunum okkar úr endurunnu og endurnýjanlegu plasti og við stefnum á að ná því upp í 100%. Þegar við bætum vörum úr endurunnum og endurnýjanlegum efnum við vöruúrval okkar vonumst við til þess að það hafi hvetjandi áhrif á önnur fyrirtæki til að gera slíkt hið sama.
Vörur úr einnota plasti hafa mengandi áhrif á umhverfið sé þeim ekki fargað á réttan hátt. Sem hluti af umhverfisstefnu okkar voru einnota plastvörur teknar úr vöruúrvali okkar árið 2020. Það náði einnig yfir diska, glös og sogrör sem í boði voru á veitingastöðunum okkar. Þeim hefur nú verið skipt út fyrir vörur úr 100% endurnýjanlegum hráefnum.
Pólýetýlen terephthalat (PET) og pólýprópýlen (PP) eru endingargóðar, hreinlátar og höggþolnar plasttegundir. Þar draga ekki mikinn vökva í sig og þola vel ýmis efni. Bæði PET og PP er hægt að endurnýta og endurvinna sem dregur úr úrgangi ásamt því sem endurnýting veitir vörunni lengri endingartíma. PET er það plast sem mest er notað í heiminum og það er meðal annars notað í plastflöskur og ílát fyrir matvæli, drykkjarvörur, hreinlætisvörur, lyf og fjölda annarra neytendavara. Við hjá IKEA notum PET aðallega í kassa, fylliefni fyrir vefnaðarvörur og yfirborðsþynnur á eldhúsframhliðar. PET er samþykkt til notkunar fyrir matvæli og drykkjarföng af heilbrigðisyfirvöldum. Við hjá IKEA notum endurunnið PET-plast sem er unnið úr flokkuðum PET-flöskum sem hafa borist til endurvinnslu.
IKEA leggur mikla áherslu á öryggi og allar vörurnar okkar eru prófaðar til að tryggja að þær standist ströngustu lög og öryggisstaðla á öllum okkar mörkuðum. Viðskiptavinir IKEA eiga að geta reitt sig á að allar vörur sem keyptar eru í IKEA séu öruggar og án skaðlegra efna. IKEA lágmarkar eða bannar (þegar mögulegt er) notkun á öllum efnum og efnasamböndum sem geta haft skaðleg áhrif á fólk og umhverfi.
Vegferð okkar í átt að því að nota einungis endurunnið eða endurnýjanlegt plast mun taka tíma og krefjast nýrra leiða í að gera hlutina, en við erum staðráðin í því að taka ábyrgð og finna nýjar lausnir. Við viljum bjóða viðskiptavinum okkar upp á vörur úr sjálfbærari efnum sem hægt er að endurvinna aftur síðar. Saman getum við skipt sköpum!
Drekalilja er harðger og auðveld í umhirðu. Hún þolir vel þurrk þar sem ræturnar eru sérstaklega góðar í að draga í sig vatn. Hentar vel fyrir byrjendur og þá sem eru ekki með eins græna fingur og þeir vildu. Þrífst best á björtum stað, en ekki í beinu sólarljósi. Vissir þú að plöntur geta aukið vellíðan og lífgað upp á heimilið?
Frá tilkomumiklum stilkum og íburðarmiklum laufblöðum til þyrnótta kaktusa og fagurra blóma. Plöntur gera heimilið persónulegra og líflegra – og þú finnur plöntu sem hentar þér og heimilishögum þínum hjá okkur. Hugsaðu út í tegund, stærð og hvernig umhirðu plantan þarf á að halda og hvort henni sé ætlað að vera úti eða inni – ásamt því hvort hún þrífist best í sólskini eða skugga. Notaðu umhirðuleiðbeiningarnar okkar til að finna réttu plöntuna fyrir þig svo hún nái að þrífast. Að lokum getur þú valið blómapott sem þér og nýju plöntunni líkar.
Vöru bætt við óskalistinn þinn
Vara fjarlægð frá óskalistinn þinn
Skreyttu heimilið með plöntum og blómapottum sem falla vel að þínum stíl.
Þessi planta er harðger og auðveld í umhirðu svo þú getur skapað grænt heimili án þess að vera garðyrkjufræðingur.
Vörunúmer 404.084.55
1 pakkning(ar) alls
Ekki lyfta plöntunni með því að taka um stofninn.
Þarf litla umhirðu.
Þessi planta er viðkvæm fyrir ofvökvun. Ef hún stendur of lengi í vatni þá skerðist súrefnisflæði til rótanna, það gæti gert út af við hana.
Styrktu plönturnar þína með mánaðarlegum skammti af áburði. Ef þú sérð að plantan er farin í vetrardvala – skaltu láta hana vera þar til vorar.
Allar IKEA plöntur eru í næringarríkum jarðvegi, það er engin þörf á að umpotta fyrr en ár er liðið frá kaupunum.
Fjarlægðu ryk af plöntunni af og til svo hún fái eins mikið ljós og hægt er.
Hæð plantnanna getur verið mismunandi.
Lengd: | 130 cm |
Heildarþyngd: | 2,48 kg |
Nettóþyngd: | 2,48 kg |
Rúmmál hvers pakka: | 194,2 l |
Þvermál hvers pakka: | 44 cm |
Vörunúmer 404.084.55
Vörunúmer | 404.084.55 |
Vörunúmer 404.084.55
Þvermál blómapotts: | 19 cm |
Hæð plöntu: | 120 cm |
Vörunúmer: | 404.084.55 |
Pakkningar: | 1 |
Lengd: | 130 cm |
Heildarþyngd: | 2,48 kg |
Nettóþyngd: | 2,48 kg |
Rúmmál hvers pakka: | 194,2 l |
Þvermál hvers pakka: | 44 cm |
Finndu vöruna í versluninni
1 pakkning(ar) alls