SYMFONISK WiFi-hátalari gerir þér kleift að streyma tónlist, útvarpi eða hlaðvarpi af netinu og streymisveitum.
Hægt að tengja við helstu tónlistarstreymisveitur.
Hægt að nota með Airplay 2 svo þú getur streymt hljóði beint úr Apple-tækinu þínu.
Þú getur streymt tónlist, hlaðvarpi eða útvarpi í gegnum WiFi án þess að símtöl eða tilkynningar trufli. Tónlistin heldur áfram þrátt fyrir að síminn eða spjaldtölvan sé ekki nálægt.
Hægt að nota með Spotify Connect sem þýðir að þú getur streymt tónlist beint frá Spotify-appinu í hátalarann.
Ef þú vilt hafa hljóðið víðóma getur þú haft tvo samsvarandi hátalara.
Hátalarinn er samstarfsverkefni IKEA og Sonos og því tengist hann auðveldlega öðrum Sonos vörum.
Hátalarinn fyllir upp í rýmið með sterkum og góðum hljóm sem gerir þér kleift að ná fram réttri stemningu á heimilinu.
Þú getur notað tvo eins hátalara í bakgrunninn með Sonos-heimabíói.
Veggfesting, hilla og þráðlaus hleðsla í einum hlut, passar aðeins fyrir SYMFONISK hátalara.
Hentar vel sem veggfast náttborð í svefnherberginu, hliðarborð í stofunni eða sem hilla í forstofunni.
Þú getur geymt gleraugu og bók á hillunni – og hlaðið símann þinn á sama tíma.
Hjálpar þér að láta tæknina falla að öðrum húsbúnaði. Veldu um svart eða hvítt eftir því hvað hentar þér og heimilinu þínu.
Er einnig með USB-tengi þar sem þú getur hlaðið tækið á fljótlegan máta með snúru.
Með snjallvörum úr IKEA verður ýmislegt einfaldara þegar kemur að lýsingu, hátölurum, rúllugardínum og lofthreinsitækjum.
Með því að tengja vöruna við DIRIGERA gáttina opnast fleiri möguleikar og þú getur stýrt henni ásamt öðrum snjallvörum í IKEA Home smart appinu.
Með IKEA Home smart appinu getur þú deyft ljósin, dregið upp gardínur, kveikt á tónlist, stýrt ákveðnum herbergjum, stillt sérstakar senur, tengt raddstýringu og fleira.