SYMFONISK WiFi-hátalari gerir þér kleift að streyma tónlist, útvarpi eða hlaðvarpi af netinu og streymisveitum.
Hægt að tengja við helstu tónlistarstreymisveitur.
Þú getur stjórnað hverjum hátalara fyrir sig, og getur því hlustað á tónlist í einu herbergi á meðan börnin hlusta á hljóðbók í öðru, eða spilað það sama á öllu heimilinu.
Hægt að nota með Airplay 2 svo þú getur streymt hljóði beint úr Apple-tækinu þínu.
Þú getur streymt tónlist, hlaðvarpi eða útvarpi í gegnum WiFi án þess að símtöl eða tilkynningar trufli. Tónlistin heldur áfram þrátt fyrir að síminn eða spjaldtölvan sé ekki nálægt.
Hægt að nota með Spotify Connect sem þýðir að þú getur streymt tónlist beint frá Spotify-appinu í hátalarann.
Ef þú vilt hafa hljóðið víðóma getur þú haft tvo samsvarandi hátalara.
Hátalarinn er samstarfsverkefni IKEA og Sonos og því tengist hann auðveldlega öðrum Sonos vörum.
Notaðu hátalarann sem hillu með því að festa hann á vegg með SYMFONISK veggfestingu fyrir hátalara sem seld er sér.
Hengdu hátalarann á KUNGSFORS slá eða grind með SYMFONISK snögum fyrir hátalara sem seldir eru sér.
Hátalarinn fyllir upp í rýmið með sterkum og góðum hljóm sem gerir þér kleift að ná fram réttri stemningu á heimilinu.
Þú getur notað tvo eins hátalara í bakgrunninn með Sonos-heimabíói.