Nýstárlegir pokagormar með s-laga kjarna mynda bylgjumynstur í dýnunni. Tvö lög af pokagormum veita tvöföld þægindi og stuðning svo þú getir fengið endurnærandi svefn.
Með sjö þægindasvæðum sem styðja við mjaðmir, axlir og allan líkamann með einstakri hönnun á gormum sem stuðlar að náttúrulegri stöðu hryggjar.
S-kjarni með pokagormum fylgir lögun hryggjarsúlunnar og getur dregið úr verkjum. Aukalag af pokagormum fylgir hreyfingum líkamans og léttir á þrýstingi á álagspunkta.
Pokagormar ná yfir alla dýnuna og lofta vel um og veita þægindi, einnig þegar tvær dýnur eru hlið við hlið.
Afar þykkt lag af svampi efst í dýnunni veitir þér aukin þægindi.
Áklæðið er úr mjúku teygjuefni sem fylgir líkamanum þegar þú hreyfir þig – aukabólstrun gefur þér lúxustilfinningu.
Þú getur setið eða sofið nálægt brúninni án þess að detta fram úr því brúnirnar eru styrktar.
Þessari fullbúnu dýnu fylgir 10 ára ábyrgð. Ábyrgðarskilmála er að finna á vefnum okkar, IKEA.is
Dýnan er seld upprúlluð til þess að einfalda þér að taka hana heim.
Bættu við kodda sem hentar þinni svefnstöðu ásamt yfirdýnu til að hlífa dýnunni.