Auðvelt að halda hreinu þar sem þú getur þvegið áklæðið í vél.
Minnissvampurinn í yfirdýnunni lagar sig að líkamanum, dregur úr álagi og bætir slökun.
Miðjan samanstendur af Bonnell-gormum sem draga úr þrýstingi á líkamann, veita stuðning og gott loftflæði – þannig að líkamanum þínum og dýnunni líður vel í langan tíma.
Höfðagaflinn er einstaklega þægilegur til að sitja upp við – tilvalið fyrir rólega morgna í rúminu, með kaffibolla og bók.
Nýstárlegur S-kjarni dýnunnar er með tveimur lögum af pokagormum sem veita þægindi og stuðning þar sem þú þarft á að halda.
Þrýstipunktar eins og axlir og mjaðmir fá góðan stuðning með sjö þægindasvæðum – aðeins eftirgefanlegri gormar þar sem líkaminn er þyngstur gera það að verkum að hann helst beinn.
Hentar í miðju herbergi þar sem bakhliðin er frágengin.