Miðjan samanstendur af Bonnell-gormum sem draga úr þrýstingi á líkamann, veita stuðning og gott loftflæði – þannig að líkamanum þínum og dýnunni líður vel í langan tíma.
Auðvelt er að taka áklæðin af og það má þvo þau í vél.
Höfðagaflinn er einstaklega þægilegur til að sitja upp við – tilvalið fyrir rólega morgna í rúminu, með kaffibolla og bók.
Dýnan er upprúlluð svo það er auðvelt að taka hana með heim og á hliðunum eru þægileg handföng svo auðvelt er að færa hana til.
Pokagormarnir eru hannaðir til að hleypa lofti í gegn um dýnuna og halda þannig jöfnum hita á líkamanum.
Pokagormar sem hreyfast sjálfstætt og þægindasvæði í dýnunni beita bæði mýkt og góðan stuðning þar sem þú þarft á honum að halda.
Hentar í miðju herbergi þar sem bakhliðin er frágengin.
Minnissvampur bregst hægt við hreyfingum og yfirdýnan hentar því vel fyrir þau sem hreyfa sig ekki mikið í svefni.