Þú færð stuðning á réttum stöðum með sérpökkuðum pokagormum sem hreyfast hver fyrir sig og fylgja líkama þínum eftir.
Finnst þér gott að halla þér aftur í þægindin í rúminu með góðri bók og tebolla? Þá er mjúki höfðagaflinn fyrir þig. Og það er auðvelt að fjarlægja áklæðið og þvo.
Fimm þægindasvæði í dýnunni veita nákvæman stuðning og létta á spennu á öxlum og mjöðmum.
Miðjan samanstendur af Bonnell-gormum sem draga úr þrýstingi á líkamann, veita stuðning og gott loftflæði – þannig að líkamanum þínum og dýnunni líður vel í langan tíma.
Dýnan færir þér gott loftflæði og þægindi í svefni því neðra lagið er úr náttúrulegum kókostrefjum sem gerir efninu kleift að anda.
Náttúruleg efni yfirdýnunnar og dýnunnar, eins og náttúrulegt latex, bómull og ull veita aukin þægindi, halda raka í jafnvægi og stuðla að notalegu svefnumhverfi með jöfnu hitastigi.
Höfðagaflinn er bólstraður allt um kring og því kemur rúmið vel út í miðju herberginu.