Stillanlegar hliðar á rúminu gera þér kleift að nota misþykkar dýnur.
Það er auðvelt að ryksuga undir rúminu til að halda rýminu hreinu og rykfríu.
Það er nægt pláss fyrir rúmfatahirslur undir rúminu – hentar vel fyrir aukasængur og kodda.
Bogadreginn höfðagaflinn umvefur þig og hjálpar þér að slaka á í rúminu.
Höfðagaflinn er einstaklega þægilegur til að sitja upp við – tilvalið fyrir rólega morgna í rúminu, með kaffibolla og bók.
Rúmið er bólstrað á öllum hliðum og því kemur það vel út frá öllum sjónarhornum og hentar jafnvel í miðju herbergi.
Málmfæturnir eru sterkir og stöðugir og lögunin á þeim færir rúminu karakter.
Tallmyra er sterkt chenille-áklæði úr 100 prósent endurunnu bómullar- og pólýesterefni með mjúkri áferð og örlitlum glans.