Stillanlegar hliðar á rúminu gera þér kleift að nota misþykkar dýnur.
Dýnubotninn er með rimlum úr gegnheilum við sem veita styrk og gott loftflæði.
Hár fótagafl kemur í veg fyrir að rúmföt detti úr rúminu og niður á gólf á meðan þú sefur.
Höfðagaflinn er hár og því getur þú setið í þægindum í rúminu – komdu fyrir nokkrum púðum og njóttu þess að lesa eða horfa á sjónvarpið.
Undir rúminu er gott pláss fyrir hirslur – fullkomið fyrir aukasængur.
Sterkleg grindin er úr gegnheilli furu. Náttúrulegar misfellur í viðnum gera hvert rúm einstakt. Rúmið hefur verið bæsað og lakkað sem gerir það endingarbetra og auðveldara í umhirðu.
Fallegt handverk allan hringinn. Því ekki að stilla því upp í miðju rýmisins og njóta?
Fullkomið jafnvægi milli þæginda og stuðnings – þægindasvæði og pokagormar hjálpa þér að sofa vært.