Veldu dýnuþykktina sem hentar þér – hár höfðagafl og fótagafl passa með ýmsum dýnum.
Hár fótagafl kemur í veg fyrir að rúmföt detti úr rúminu og niður á gólf á meðan þú sefur.
Höfðagaflinn er hár og því getur þú setið í þægindum í rúminu – komdu fyrir nokkrum púðum og njóttu þess að lesa eða horfa á sjónvarpið.
Það er auðvelt að ryksuga undir rúminu til að halda rýminu hreinu og rykfríu.
Látlaus en þó einstök smáatriði á höfða- og fótagafli og fótum færa því skemmtilegt yfirbragð.
Kolgrá duftlökkuð stálgrindin er ekki aðeins sterk og stöðug heldur einnig auðveld í umhirðu.
Hvort sem þú ert meira fyrir rómantískan stíl eða nútímalegan þá passa rúmföt og svefnherbergishúsgögnin sem þú átt nú þegar fullkomlega við rúmgrindina.
Undir rúminu er nóg pláss fyrir hirslukassa. Fullkomið ef þú vilt nýta hvern krók og kima.
LURÖY rimlarúm með bogadregnum rimlum fylgir líkamsþyngd þinni og styður við líkamann á meðan botninn hleypir lofti í gegn sem heldur dýnunni ferskri.