Hirsla undir legubekknum. Lokið helst opið svo þú getir tekið hluti úr og sett í á einfaldan og öruggan hátt.
Auðvelt er að breyta sófanum í rúmgott rúm með því að fjarlægja bakpúðana og toga rúmgrindina undan sófanum.
10 ára ábyrgð. Ábyrgðarskilmála er að finna á vefnum okkar, IKEA.is
Hægt er að hafa legubekkinn hægra eða vinstra megin svo þú getur aðlagað sófann að rýminu og þínum smekk.
Búið er að meðhöndla áklæðið og blettir festast því síður í efninu því þeir fara bara á yfirborðið. Þú einfaldlega þurrkar þá af með þurrum klút.
Sessurnar í BÅRSLÖV svefnsófanum eru stórar og mjúkar sem er þægilegt að sökkva sér í.
Fasta áklæðið er úr Tibbleby efni, mjúkt dope-litað pólýesterefni með örlitlum gljáa og látlausu síldarbeinamynstri.