Auðvelt er að halda áklæðinu hreinu því hægt er að taka það af og setja í þvottavél.
Úrval áklæða gerir þér kleift að gefa húsgögnunum þínum nýtt útlit þegar þér hentar.
10 ára ábyrgð. Ábyrgðarskilmála er að finna á vefnum okkar, IKEA.is.
Kilanda áklæðið er úr að minnsta kosti 90% endurunnu pólýester með mjúkri tvítóna áferð.
Bakpúðarnir eru góður stuðningur fyrir bakið. Púðunum má snúa við. Blanda af pólýestertrefjum og svampi gerir það að verkum að púðarnir halda lögun sinni og þægindum árum saman.
Þú umbreytir stofunni þinni í svefnherbergi eða gestaherbergi með HYLTARP svefnsófa, og svo aftur í stofu eftir góðan nætursvefn.
Gott handverk og hentug stærð gerir það að verkum að HYLTARP svefnsófinn sýnir alltaf sínar bestu hliðar.
Yfirborðið veitir góðan stuðning og er jafnt þar sem dýnan er heil eining.
Í sófanum er þægilegur og eftirgefanlegur svampur og pokagormar sem fylgja útlínum líkamans og veita stuðning – hvort sem þú situr eða liggur.