HUVUDROLL
Grænmetisbollur,
1000 g, frosið

1.090,-

Magn: - +
HUVUDROLL
HUVUDROLL

HUVUDROLL

1.090,-
Vefverslun: Til á lager
Bragðgóðar grænmetisbollur með ljúffengu grænmetisbragði, innihalda kjúklingabaunir, gulrætur, papríku, maís og kál. Engar dýraafurðir – tilvalið fyrir grænmetisætur eða grænkera.
HUVUDROLL grænmetisbollur

Gott hlaðborð

Uppskriftin sem við notum í hefðbundnu IKEA kjötbollurnar er frá árinu 1985. Síðan þá hafa IKEA kjötbollurnar verið heimsþekktar og gott dæmi um hefðbundna sænska matargerð. En þegar við spurðum viðskiptavini, í þremur heimsálfum, hvernig mat þeir kysu áttuðum við okkur á því að við þyrftum að stækka kjötbolluúrvalið með öðrum bragðgóðum valkostum.

„Það borða ekki allir nauta- eða svínakjöt, og því fórum við inn í eldhús að búa til nýjar uppskriftir.“ segir David Johansson, matreiðslumaður og vöruhönnuður hjá IKEA Food Services. Fyrst komum við með kjúklingabollurnar sem er valkostur fyrir þá sem vilja kjöt, en kannski ekki rautt kjöt. „Þær eru góðar bæði heitar og kaldar, eins og hefðbundnu kjötbollurnar okkar, og við höfum kryddað þær varlega svo þær passi í mismunandi matargerð og þeim hráefnum sem fást á hverjum stað fyrir sig.“

Nýtt bragð í gömlum búningi

Sjálfbærni var einnig drifkrafturinn þegar við komum með nýjungarnar. „Með grænmetisbollunum vildum við bjóða upp á eitthvað sem væri vel metið eins og hefðbundnu kjötbollurnar, en úr grænmeti og hefði því minni umhverfisáhrif,“ útskýrir David. Því næst komu laxa- og þorskbollurnar. Þær innihalda laxabita sem eru of litlir í flök. „Við hugsuðum, því ekki að nota þessa bita í gómsætar fiskibollur?“ segir David.

Kjötbollan endursköpuð, án kjöts

Nýjasta viðbótin er grænkerabollurnar. Þær eru úr baunaprótíni, kartöflum, eplum, höfrum og lauk, en bragð og áferð líkist hefðbundnu kjötbollunum. Ljúffengur kostur ef þú vilt borða minna af kjöti, en elskar samt kjötbollur. „Margt hefur breyst síðan 1985. Nú geta fleiri fengið þekktasta réttinn okkar. Hvort sem mataræðið er almennt, vegan, sérfæði eða taki mið af menningarlegum hefðum.“

Sjá meira Sjá minna

Energy and Resources

Himneskt bragð úr jarðveginum

Okkur langar til að hvetja fleiri til að borða meira úr jurtaríkinu. Hvers vegna? Því framleiðslan er sjálfbærari þar sem hún krefst almennt minna af vatni, minna af landsvæði og minna af orku. Til þess að þú getir auðveldlega valið sjálfbærari kost í þínu daglega lífi og dregið úr kolefnisspori þínu býður veitingastaðurinn okkar, bistróið og sænska matarhornið upp á ýmsa valkosti úr jurtaríkinu. Það er líka eitt enn – matvæli sem koma upp úr jarðveginum bragðast frábærlega!

Form/Hönnunarferli

Bollur fullar af grænmeti

HUVUDROLL grænmetisbollur – nafnið segir allt. Þær bragðast eins og innihalda bara grænmeti – stórir sjáanlegir bitar af kjúklingabaunum, grænum baunum, gulrótum, papriku, maís og grænkáli sem gefa þeim fallegan lit. Þar sem þær innihalda engar dýrafurðir eru þær góður kostur fyrir grænmetisætur og grænkera – eða bara fyrir þá sem vilja minnka loftslagsspor sitt með því að borða mat úr jurtaríkinu. Grænn og bragðgóður valkostur til móts við hefðbundnu kjötbollunum okkar!


Aftur efst
+

Vöruvöktun

Áætlað magn

Tilkynning hefur verið stillt

X