ALLEMANSRÄTTEN
Grænmetisbollur, frosnar,
100% grænmeti

1.090,-

ALLEMANSRÄTTEN
ALLEMANSRÄTTEN

ALLEMANSRÄTTEN

1.090,-
Aðeins fáanlegt í verslun

Með því að borða meira af plöntumiðuðu fæði minnkar þú kolefnisfótspor þitt.

Einfalt að matreiða beint úr frysti á nokkrum mínútum. Í ofni, örbylgjuofni eða á eldavélinni.

Einfalt að skammta. Matreiddu það magn sem þarf, skildu restina eftir í frystinum.

Jafn ljúffengar heitar sem kaldar, t.d. skornar í tvennt sem álegg á samloku.

Það glittir í litríka bita af kjúklingabaunum, gulrótum, paprikum, maís og grænkáli í bollunum. Góður valkostur með fáum hitaeiningum og minni fitu.

Inniheldur engar dýraafurðir og er því tilvalið fyrir grænmetisætur og grænkera.

Hægt að matreiða á mismunandi vegu. Prófaðu til dæmis þessar í stað kjötbollanna í uppáhalds kjötbolluréttinn þinn.

Mikið magn af trefjum, prótíni, vítamínum og næringarefnum, en lágt kólesteról.

Uppskriftin inniheldur ekki efni sem eru ofnæmisvaldandi eins og glúten, soja, hnetur, egg eða laktósa svo sem flestir geti notið þeirra.

Bjóddu upp á hlaðborð með kjötbollum, grænmetisbollum, kjúklingabollum og laxabollum. Eitthvað fyrir alla.

Grænmetisbollur ættu að smakkast eins grænmeti. Þess vegna eru okkar úr engu nema grænmeti. Sannkölluðu grænmetisveisla.

ALLEMANSRÄTTEN grænmetisbollur, frosnar

Kjötbollur fyrir alla

Kjötbollur eru órjúfanlegur hluti af sænskri menningu. Það borða þó ekki allir kjöt. Við höfðum því samband við fólk í þremur heimsálfum, Asíu, Evrópu og Norður Ameríku og vildum vita hvað þeim finnst gott og hvað þau elda. Svo bjuggum við til grænmetisbollur. Það var þó ekki nóg til að gleðja alla svo við bjuggum líka til kjúklingabollur. Allar bollurnar auk meðlætis, eins og rjómalöguð sósa og kartöflumús, eru hluti af ALLEMANSRÄTTEN línunni.

Annika Dunnico vann að þróuninni. „Hvort sem þú borðar hvað sem er, ert grænkeri, fylgir mataræði sem tekur mið af trú eða vilt stuðla að fjölbreyttara mataræði – það er réttur hvers og eins að bragða á þessum klassíska IKEA rétti, hvað sem þú velur,“ segir Annika. Hennar uppáhaldsbollur eru sígildu nauta- og svínakjötsbollurnar en hún er líka mjög hrifin af einni annarri tegund. „Mér finnst grænmetisbollurnar alveg frábærar. Þú getur gert svo margt við þær,“ segir hún og útskýrir að leitast var eftir því að bollurnar væru góðar hvernig sem er, hvort sem það væri í karrí- eða BBQ-rétti.

Sjálfbærari kostur

Sjálfbærni var veigamikil ástæða þess að Annika og samstarfsfólk hennar hannaði nýja valkosti. Kjötframleiðsla hefur áhrif á loftslagsbreytingar og ein leið til að sporna við henni er val á mat. Grænmetisfæði hefur minni áhrif á umhverfið okkar. Kjúklingabollurnar hafa allt að fimm sinnum minna loftslagsspor en klassísku kjötbollurnar og grænmetisbollurnar eru enn umhverfisvænni, með allt að 30 sinnum minna loftlagsspor. Bæði kjúklinga- og grænmetisbollurnar eru með lægra fitu- og kaloríuinnihaldi sem gerir þær líka að heilsusamlegri valkosti. „Þig á eftir að langa í þessar bollur þó þú sért ekki grænkeri eða grænmetisæta,“ segir Annika. „Fólk er bara í leit að góðum mat. Við erum heimsþekkt fyrir kjötbollurnar okkar og nú geta allir fengið eitthvað við sitt hæfi.“

Sjá meira Sjá minna

Aftur efst
+

Vöruvöktun

Áætlað magn

Tilkynning hefur verið stillt

X