295,-
Afsakið!
Það er ekki nóg til á lager fyrir pöntunina þína.
KAFFEREP
Hefur þú einhverntímann fengið þér kaffibolla og sætabrauð með? Þá hefur þú óafvitandi upplifað eina af vinsælustu hefðum Svíðþjóðar – Fika. Það eru engar ýkjur að segja að allir í Svíþjóð fái sér fika. En þar sem fólk verður sífellt uppteknara er heimatilbúið fika ekki lengur venjan. Á milli þess sem fólk sinnir vinnu, fjölskyldu og áhugamálum er þörf á einfaldari valmöguleikum. Hér kemur KAFFEREP línan sterk inn.
KAFFEREP línan inniheldur kexkökur, sætabrauð og aðrar veitingar sem eru innblásnar af dálæti okkar af fika og allt sem sú stund stendur fyrir. Í línunni finnur þú eftirlæti okkar – hefðbundið hafrakex og piparkökur. Í Sænska matarhorninu eigum við það sem þarf fyrir fika, það er því auðvelt að taka þátt í dásamlegu hefðinni okkar.
Jenni Odenmo er einn af starfsmönnum IKEA sem hjálpaði til við að kynna KAFFEREP. Hún nýtur þess að fara í fika með samstarfsfólki sínu á skrifstofunni og með vinum eða nágrönnum sem kíkja í heimsókn. En Jenny lifir erilsömu lífi og það er ekki mikill tími til aflögu. „Börnunum þykir gaman að baka. Mér þykir gaman að baka, en ég get ekki sagt að við bökum í hverri viku. Það er bara ekki hægt. Við höfum ekki tíma. Þess vegna á ég alltaf varabirgðir fyrir fika í skápunum,“ segir Jenny. „Við erum nútímafjölskylda og við þurfum á þægindum að halda.“ Varabirgðirnar eru reyndar með því besta sem hún fær. KAFFEREP hafrakexið með súkkulaði er yfirleitt fljótt að fara á hennar heimili. „Það er með svo góðu súkkulaði á milli stökka kexins. Ég opna pakka og innihaldið gufar upp.“
Núna þegar bæði er hægt að fá gott kaffi og gómsæt sætindi hjá IKEA er fika aðgengilegra. „KAFFEREP línan hefur fjölbreytt úrval,“ segir Jenny. „Hjá okkur er úrvalið breitt. Við bjóðum í raun upp á allt sem þú þarft til að útbúa gott fika.“
Piparkökurnar eru með krydduðu bragði af kanil, engifer og negul. Þær eru sérstaklega vinsælar um jólin en eru þó æðislega góðar allt árið um kring. Einfaldlega gómsætar! Tilvaldar með kaffibolla og koma skemmtilega á óvart með blámygluosti.
Vöru bætt við óskalistinn þinn
Vara fjarlægð frá óskalistinn þinn
Tilbúið til framreiðslu. Til dæmis með kaffi og góðum vinum í „fika“ – kaffitíma á sænska vegu.
Sígild sænsk jólakexkaka. Nú má njóta hennar allt árið um kring.
Sænsk klassík. Sætt og stökkt með fínu möndlukurli og sterkum engiferkeim.
Vörunúmer 203.749.08
1 pakkning(ar) alls
Áður en þú opnar pakkann skaltu hafa í huga að fólk nálægt þér gæti verið með alvarlegt hnetuofnæmi.
Lengd: | 18 cm |
Breidd: | 6 cm |
Hæð: | 6 cm |
Heildarþyngd: | 0,20 kg |
Nettóþyngd: | 0,17 kg |
Rúmmál hvers pakka: | 0,7 l |
Vörunúmer 203.749.08
Vörunúmer | 203.749.08 |
Vörunúmer 203.749.08
Heildarþyngd: | 170 g |
Vörunúmer: | 203.749.08 |
Pakkningar: | 1 |
Lengd: | 18 cm |
Breidd: | 6 cm |
Hæð: | 6 cm |
Heildarþyngd: | 0,20 kg |
Nettóþyngd: | 0,17 kg |
Rúmmál hvers pakka: | 0,7 l |
Finndu vöruna í versluninni
1 pakkning(ar) alls