Auðvelt er að halda áklæðinu hreinu því hægt er að taka það af og setja í þvottavél.
Úrval áklæða gerir þér kleift að gefa húsgögnunum þínum nýtt útlit þegar þér hentar.
Með hirslu undir legubekknum. Lokið helst opið, og því er auðvelt að ná í það sem vantar eða setja í hirsluna.
10 ára ábyrgð. Ábyrgðarskilmála er að finna á vefnum okkar, IKEA.is.
Gott handverk og hentug stærð gerir það að verkum að sófinn sýnir alltaf sínar bestu hliðar.
Í sófanum er þægilegur og eftirgefanlegur svampur og pokagormar sem fylgja útlínum líkamans og veita stuðning – hvort sem þú situr eða liggur.
Bakpúðarnir eru góður stuðningur fyrir bakið. Púðunum má snúa við. Blanda af pólýestertrefjum og svampi gerir það að verkum að púðarnir halda lögun sinni og þægindum árum saman.
Gransel áklæði er úr blöndu af hör og viskósa, á því er örlítill gljái og þar sem þræðirnir eru misþykkir verður áferðin lífleg.