Það er auðvelt að halda áklæðinu hreinu þar sem þú getur þvegið það í þvottavél og það er lítið mál að fjarlægja það og setja aftur á.
10 ára ábyrgð. Ábyrgðarskilmála er að finna á vefnum okkar, IKEA.is
Þægilegu JÄTTEBO sófaeiningarnar geta raðast saman eins og hentar þér. Þú getur búið til lítinn eða stóran sófa og bætt fleiri einingum við þegar þarfir þínar breytast.
Djúp og jöfn sætin gera það að verkum að JÄTTEBO sófinn er mjög þægilegur, sérstaklega til að liggja á og njóta góðrar bókar.
Rúmgóðar hirslur í legubekknum og sætiseiningunum henta vel fyrir teppi, spil og kassa með smáhlutum.
Lamirnar eru með gasdempurnum sem tryggja að hirslan opnast og lokast hægt og rólega. Lokið helst opið, og því er auðvelt að ná í það sem vantar eða setja í hirsluna.
Einingarnar eru fallegar frá öllum hliðum og því getur þú haft sófann við vegg eða í miðju rými.
Sófinn getur orðið huggulegri ef örmum er bætt á hann.
Það er einfalt að færa einingarnar án þess að verkfæra sé þörf. Opnaðu einfaldlega hirsluna til að losa festingarnar, raðaðu einingunum upp á nýtt og festu síðan festingarnar aftur.
Þessi legubekkur er fullkominn ef þú vilt slappa vel af í sófanum því þú getur notið þess að teygja úr þér.
Bættu við fleiri legubekkjum, sætiseiningum, örmum og höfuðpúðum. Notaðu teikniforrit til að finna samsetningu sem hentar þér.
Í legubekknum og sætiseiningunum er þægilegur og eftirgefanlegur svampur og pokagormar sem fylgja útlínum líkamans og veita stuðning – hvort sem þú situr eða liggur.
Áklæðið er úr Samsala, afar þykku, riffluðu flauelsefni sem er endingargott og mjúkt með mikinn karakter.