Þú getur notað gólfpúðann á marga vegu – sem fótaskemil, aukasæti eða borð ef þú setur á hann bakka.
10 ára ábyrgð. Ábyrgðarskilmála er að finna á vefnum okkar, IKEA.is
Tonerud áklæðið er úr mjúku pólýesterefni með tvítóna flókaáferð.
Búið er að meðhöndla áklæðið og blettir festast því síður í efninu því þeir fara bara á yfirborðið. Þú einfaldlega þurrkar þá af með þurrum klút.
Hægt að stafla, því getur þú verið með nokkra við höndina fyrir aukagesti án þess að þeir taki of mikið pláss.
Þú getur auðveldlega fært gólfpúðann til hvenær sem þú þarft á að halda og notað hann sem aukasæti, til dæmis þegar vinir koma í heimsókn.