BERGMUND
Áklæði á barstól með baki,
Gunnared grátt

2.450,-

Magn: - +
BERGMUND
BERGMUND

BERGMUND

2.450,-
Vefverslun: Til á lager
Barstólarnir í BERGMUND línunni eru mjúkir og þægilegir og þú getur valið úr breiðu úrvali áklæða, til dæmis þetta glæsilega gráa áklæði. Eftir gómsæta máltíð og notalegt spjall er gott að vita að það má setja það í þvott.

Efni

Hvað er pólýester?

Pólýester er endingargott, einangrandi efni sem þornar hratt og er tilvalið í vefnað eins og fyllingu í kodda, sængur og húsgögn. Efnið er unnið úr hráolíu sem er takmörkuð auðlind. Þar sem IKEA vill leggja sitt að mörkum í að draga úr notkun hráolíu erum við smám saman að skipta yfir í endurunnið og rekjanlegt pólýester sem meðal annars er unnið úr PET-flöskum. Það sem er gott við pólýester er að það er hægt að endurvinna það aftur og aftur án þess að það tapi eiginleikum sínum.

Hugleiðingar hönnuða

Marianne Hagberg og Knut Hagberg, hönnuðir

„Þegar við hönnuðum BERGMUND vildum við gera stóla sem henta sem flestum alla daga ársins. Þú getur skipt um áklæði svo það passi árstíðinni, tilefninu eða breyttum stíl og valið úr mismunandi litum og síddum. Það eina sem ekki breytist er mjúkt og þægilegt sætið og sniðskornir fæturnir sem gera það að verkum að áklæðið nær að liggja vel á grindinni. Við vonumst til þess að stólarnir geri þér og vinum þínum kleift að staldra við og slaka á aðeins lengur.“


Bæta við vörum

Aftur efst
+

Vöruvöktun

Áætlað magn

Tilkynning hefur verið stillt

X