Bomstad áklæðið líkist gæðaleðri og tvöfaldir saumar gefa stólnum karakter og styrkja áklæðið.
Þykkt svampsæti gerir þér kleift að sitja heillengi á þægilegum stólnum.
Passar vel við TONSTAD borðin þar sem einnig er áhersla á hágæða efni og vönduð smáatriði.
Það er auðvelt að halda áklæðinu hreinu með því að þurrka af því með svampi bleyttum í vatni eða mildu hreinsiefni.
Áklæðið á stólinn er í einu lagi og festist með frönskum rennilás svo auðvelt er að taka það af og setja það aftur á.
Eftirgefanlegur svampur í stólbakinu lagar sig að líkama þínum og styður við bakið, jafnvel þótt þú breytir aðeins um stöðu.
Gegnheilir viðarfætur með eikaráferð og duftlökkuðum málmi efst. Flottir og stöðugir.