Nýtist sem aukasæti eða skemill.
Hægt að stafla, því getur þú verið með nokkra við höndina fyrir aukagesti án þess að þeir taki of mikið pláss.
Stöðugur og endingargóður, en jafnframt léttur og auðvelt að færa hann til þar sem stálgrindin er hol að innan.
Þriggja fóta kollur vaggar ekki, jafnvel þó gólfið sé ójafnt, því allir fæturnir standa á yfirborðinu.
Nett hönnun sem fellur vel að rýminu án þess að draga að sér of mikla athygli. Létt en þó nægilega sterkbyggt til að þola hversdaginn.
Handofið af færu handverksfólki og því er hver hlutur einstakur.
Efniviðurinn færir náttúruna inn á heimilið og veitir hlýlega og róandi tilfinningu.
Sætið er ofið úr bananatrefjum – fallegu og endingargóðu efni með breytilegum litbrigðum – hver kollur hefur því náttúrulegt og einstakt útlit.