Innbyggður hitamælir í lokinu hjálpar þér að fylgjast með hitastiginu á meðan þú grillar – án þess að þurfa að lyfta lokinu.
Hitaeinangrandi höldur úr ryðfríu stáli.
Grindin er endingargóð og ryðvarin þar sem hún er úr hágæða ryðfríu stáli.
Eldhúseyjan veitir þér aukahirslupláss og góða vinnuaðstöðu þar sem þú getur undirbúið matinn áður en þú setur hann á grillið.
Á hillunum er gott pláss fyrir diska, glös, áhöld og aðra hluti sem gott er að hafa við höndina í grillveislunni.
Borðið er úr ryðfríu stáli – hreinlegu, sterku og endingargóðu efni sem ryðgar ekki og er auðvelt í þrifum.
Ef þú vilt hafa rennandi vatn utandyra getur þú tengt vaskaeininguna við garðslöngu.
GRILLSKÄR gasgrillið er með fjórum brennurum sem hægt er að stilla og því færð þú marga möguleika við matreiðsluna.
Brennararnir eru úr ryðfríu stáli og auðvelt er að stýra hitanum á þeim svo hann henti mismunandi matvælum.
Rúmgott eldunarsvæði (68×49 cm) gerir þér kleift að elda góða rétti fyrir alla fjölskylduna.