Gardínur með gardínuborða sem gerir þér kleift að hengja þær beint á stöngina með þar til gerðum vösum eða flipum. Þú getur líka hengt gardínuna á gardínubraut með hjólum og krókum.
Með hjólum og krókum skapast yfirleitt formlegra og fágaðra yfirbragð þar sem ekki sést í festingarnar.
Ljóst, hálfgegnsætt efnið gerir þér kleift að sjá út án þess að sjáist vel inn á daginn.
Litirnir minna á fallegt sólsetur á ströndinni.
Efnið síar dagsbirtu og dregur úr glampa á sjónvarpi eða skjá. Þú getur enn séð út en færð þó smá næði. Tilvalið með fleiri lögum af gardínum.
Á daginn sjást skuggar og útlínur inn um gluggann. Þegar myrkur er úti og ljós inni getur fólk séð inn.
Gardína sem er 250 cm á lengd er hentug ef þú vilt hengja hana upp fyrir ofan glugga.