Gardínurnar hleypa birtunni í gegnum sig en veita þér næði svo þær henta vel í lagskipta gardínulausn.
Gardínur með gardínuborða sem gerir þér kleift að hengja þær beint á stöngina með þar til gerðum vösum eða flipum. Þú getur líka hengt gardínuna á gardínubraut með hjólum og krókum.
Með hjólum og krókum skapast yfirleitt formlegra og fágaðra yfirbragð þar sem ekki sést í festingarnar.
Gardínubönd í stíl undirstrika fyllingu efnisins og veita glugganum fallegt, klassískt yfirbragð. Þú getur stillt hæðina eins og þér finnst fallegast.
Bómull er mjúkt, endingargott og náttúrulegt efni sem er auðvelt í umhirðu því það má þvo í vél.