Gardínuborðinn er í sama lit og gardínan og því lítur hún einnig vel út að aftan.
Myrkvunargardínur loka birtu úti þannig að þú getir notið myrkursins í herberginu.
Gardínur með gardínuborða sem gerir þér kleift að hengja þær beint á stöngina með þar til gerðum vösum eða flipum. Þú getur líka hengt gardínuna á gardínubraut með hjólum og krókum.
Efnið er jacquard-ofið sem þýðir að mynstrið er ofið inn í efnið og færir því fágaða og þykka áferð.
Fóðrið hindrar enn betur að birtan komi í gegn og gerir gardínurnar fallegar á bakhliðinni.