Góð leið til að draga úr dragsúg á veturna og hita á sumrin.
Gardínuborðinn auðveldar þér að plísera gardínuna með RIKTIG gardínukrókum.
Gardínur með gardínuborða sem gerir þér kleift að hengja þær beint á stöngina með þar til gerðum vösum eða flipum. Þú getur líka hengt gardínuna á gardínubraut með hjólum og krókum.
Með hjólum og krókum skapast yfirleitt formlegra og fágaðra yfirbragð þar sem ekki sést í festingarnar.
Gardínurnar hleypa smá birtu í rýmið og koma í veg fyrir glampa á sjónvarp og tölvur. Þær veita að auki næði þar sem erfitt er að greina form og ljós inni þegar þú stendur fyrir utan.
Gardínur draga úr hita sólarinnar og minnka dragsúg frá óþéttum gluggum. Þær virka best ef hengdar úr lofti og ná niður í gólf, eins nálægt glugganum og hægt er.