Hægt að skera í þá breidd sem óskað er eftir.
Gardínan er snúrulaus sem eykur öryggi barna.
Myrkvunargardína lokar úti birtu þannig að þú getir sofið vært í myrkvuðu herbergi.
Hvítt hringmynstrið á hvítu efninu sést aðeins frá ákveðnum sjónarhornum. Það er bæði sérstakt og látlaust svo þú færð ekki leið á því.
Snjöll hönnun demparans í rúllugardínunni gerir það að verkum að þú getur dregið frá og fyrir hljóðlaust.
Þú þarft ekki að skipta út festingum eða bora ný göt þótt þú skiptir um rúllugardínu. Meðfylgjandi vegg- og loftfestingar passa fyrir LÅNGDANS og SANDVEDEL rúllugardínur og FÖNSTERBLAD myrkvunarrúllugardínur.
Það er auðvelt að stilla lengdina á rúllugardínunni. Þú fjarlægir bara festingarnar, dregur gardínuna niður í æskilega lengd og setur festingarnar aftur á. Þegar þú sleppir gardínunni fer hún sjálfkrafa í þá lengd sem þú stilltir hana á.
Hægt er að klippa gardínuna svo hún passi í minni glugga. Gættu að því að klippa ekki meira en leiðbeiningar segja til um.