SKOGSKLÖVER
Rúllugardína,
60x195 cm, grátt

3.990,-

2.690,-

Magn: - +
SKOGSKLÖVER
SKOGSKLÖVER

SKOGSKLÖVER

3.990,-
2.690,-
Vefverslun: Til á lager
Rúllugardína sem lítið fer fyrir, dempar dagsljósið og gerir notalega stemningu í herberginu. Gardínan rúllar hægt aftur upp, þökk sé ljúflokunni – og hún er snúrulaus, til að tryggja öryggi barnanna.
SKOGSKLÖVER rúllugardína

Leyfum okkur að týnast í lögunum

UPPLÝSINGAR UM LAUSNIR FYRIR GLUGGANN

Með lögum af mismunandi tegundum af gardínum getur þú gert gluggann notalegan og síbreytilegan. Það er fegurð sem býr yfir hagnýtri virkni – gardínur sem hægt er að draga frá og fyrir eftir þörfum til að stilla af birtu, hljóð, hita og næði. Leyfðu okkur að vísa þér á réttu lausnina fyrir þig.

Þrjú lög af hitastýringu

Vissir þú að þú getur stillt hitastigið með gardínunum? HOPPVALS gardínurnar eru með vaxkökulagi sem einangrar hita og heldur rýminu heitara á veturnar og svalara á sumrin.

Fyrir ljúfar næðisstundir

Með lagskiptum gardínum getur þú stýrt birtu, hljóði, hitastigi og útliti á persónulegan hátt. Ásamt því að ráða hversu mikið eða lítið næði þú færð.

Slakaðu á

Við þurfum öll góðan stað til að hlaða batteríin eftir langan dag til að vera tilbúin í þann næsta. Með þremur lögum af gardínum sem dempa ljós og hafa róandi yfirbragð getur þú haft svefnherbergisgluggann eftir þínu höfði.

Næturvaktin

Þarftu að ná upp svefni? Myrkvaðu svefnherbergið algerlega með myrkvunargardínum í innsta laginu. Þykkar gardínur að utanverðu færir þér róandi yfirbragð og dempar umhverfishljóð.

Því það er öruggara

Við trúum því að börnin séu mikilvægasta fólkið í heiminum. Því höfum við breytt gardínunum okkar þannig að þær séu eins öruggar og hægt er. Við eyddum fjórum árum í að finna aðra kosti og þar sem það var ekki hægt fjarlægðum við vöruna úr vöruúrvali okkar. Svo nú eru allar IKEA rúllugardínur fullkomlega öruggar fyrir börn. Bless snúrur, halló hugarró.

Svona mælir þú fyrir gardínunum þínum

Hluti leyndarmálsins til að fá fallegar lagskiptar gardínur fyrir gluggann er að mæla hann rétt. 1. Breidd gluggans (a) Þessi mæling ákvarðar lengd gardínustangarinnar eða gardínubrautarinnar. Bættu að minnsta kosti við 15 cm hvoru megin við mælinguna til að tryggja að gardínurnar hylji gluggann alveg. 2. Lengd gardínanna (b) Þessi mæling ákvarðar sídd gardínanna eða flekanna. Mældu frá efri brún gluggans og stoppaðu þar sem þú vilt að gardínurnar eða flekarnir nái. Þumalputtareglan hér er að bæta 15 cm við mælinguna. Festu gardínustöngina eða gardínubrautina 15 cm fyrir ofan gluggann.

Sjá meira Sjá minna

Eiginleikar

Öruggara umhverfi við gluggann

Börn eru mikilvægasta fólkið í heiminum og heimilið ætti að vera öruggasti staðurinn í heimi. Þess vegna fjarlægðum við allar snúrur af gardínum.

Efni

Hvað er endurunnið pólýester?

Þegar við framleiðum vörur úr endurunnu pólýester fá PET-flöskur og annað úr pólýester nýtt líf í hlutum eins og vefnaðarvörum, kössum, eldhúsframhliðum og jafnvel ljósum. Þegar þú notar þessar vörur færð þú sömu gæði og virkni og frá vörum úr nýju pólýester. Að sjálfsögðu eru þessar vörur jafn hreinar og öruggar og aðrar vörur. Það sem er samt allra best er að þú stuðlar einnig að minni hráefnisnotkun.

Hugleiðingar hönnuða

David Wahl hönnuður

„Ég er hrifinn af rúllugardínum sem rúlla mjúklega. Það á að vera auðvelt að toga þær niður og festa í þeirri hæð sem þú vilt og rúlla þeim upp aftur án þess að þær skjótist upp. Ég vann náið með birgðasala fyrir hönnunina á SKOGSKLÖVER rúllugardínunum. Ýmsar prófanir voru gerðar áður en við náðum þeirri mýkt sem við vildum. Þessar rúllugardínur nema staðar nákvæmlega þar sem þú vilt.“

Gæði

Öruggara umhverfi við gluggann

Börn eru mikilvægasta fólkið í heiminum og heimilið ætti að vera öruggasti staðurinn í heimi. Þess vegna ákváðum við að fjarlægja allar gardínur sem hafa snúrur og finna betri lausn. Þess vegna eru gardínurnar okkar ekki bara snúrulausar eða með snúrum sem erfitt er að komast að, heldur hafa efnin og vörurnar í heild staðist strangar öryggisprófanir. Með stolti getum við sagt að gardínurnar okkar hafi aldrei verið betri eða öruggari.


Bæta við vörum

Aftur efst
+

Vöruvöktun

Áætlað magn

Tilkynning hefur verið stillt

X