Bómull er mjúkt náttúrulegt efni sem er auðvelt í umhirðu því það má þvo í vél.
Umslagslokunin heldur púðanum á sínum stað án þess að það þurfi að renna eða hneppa.
Passar vel við aðra handgerða vefnaðarvöru í ÅKERNEJLIKA línunni.
IKEA vinnur með félagslegum fyrirtækjum víðs vegar um heim til þess að hanna einstakar vörur og skapa störf fyrir fólk sem þarf mest á því að halda.
Púðaverið er ákaflega fallegt og frískar upp á stofuna. Áprentað blómamynstrið á bláum bakgrunni er með handsaumuðum fræhnútum.
Hvert púðaver er einstakt því það er handgert í Jordan River Foundation; félagslegu fyrirtæki sem skapar störf fyrir handverkskonur.