VILDPERSILJA
Púðaver,
50x50 cm, svargrænt marglitt/blómamynstur

2.490,-

Magn: - +
VILDPERSILJA
VILDPERSILJA

VILDPERSILJA

2.490,-
Vefverslun: Til á lager
Þykkt púðaver úr bómullar- og hörblöndu minnir á ævintýralega garða með villtum trjám og blómum. Mynstrið færir rýminu líf og liti og passar vel við VILDPERSILJA gardínur.
VILDPERSILJA púðaver

Handmáluð gróðursæld

Epli, fíkjulauf, bergflétta, rósir, morgunfrúr og stokkrósir. Mynstrið á VILDPERSILJA gardínunum og púðaverunum gefur heimilinu hlýlegt og sumarlegt yfirbragð. Hönnuðurinn fer daglega í göngutúr og þannig fékk hún hugmyndina að mynstrinu.

Hönnuðurinn, Emma Prowse, býr í Visby í Svíþjóð, gamalli borg með hlykkjóttum götum og virkisveggjum frá miðöldum. Þar fæddist hugmyndin að VILDPERSILJA mynstrinu. „Ég kíki stundum inn í gróðurmikla garða sem leynast á bak við háar viðargirðingar. Þar sé ég epla-, valhnetu- og fíkjutré ásamt rósum og fjölda annarra litríkra blóma.“ Málað með gvasslitum Emma fór að rissa þessi blóm og plöntur á blað í göngutúrunum. „Skissurnar mínar eru alltaf svolítið óreiðukenndar og ég vil ekki sýna þær. En þær voru mikilvægar til þess að prófa mig áfram með mismunandi plöntur, eins og hvernig lauf og blóm fara saman og geta breyst í mynstur.“ Því næst málaði Emma mynstrið með gvasslitum í sumarlegri litapallettu. „Gvass eru svipaðir vatnslitum nema minna gegnsæir. Ég setti fókus á liti og form og skapaði dýpt í mynstrinu. Ég vildi fanga tilfinninguna sem ég fæ í hvert sinn sem ég sé gróðurinn.“

Tímalaust mynstur

Mynstrið var prentað á efni og úr því varð púðaver og gardínur. Púðaverin eru saumuð úr metravöru og þess vegna er ekkert þeirra eins. Veldu það sem þér þykir fallegast eða fylltu sófann af púðum. „Ég vildi hanna mynstur sem fólk yrði ekki þreytt á eftir nokkur ár,“ segir Emma. „Það er tímalaust og passar bæði inn á stílhrein heimili og litrík.“ Það þarf ekki endilega að kíkja inn í annarra manna garða til að sjá villtan, fallegan gróður – hér er hann kominn heim í stofu á púða eða gardínum!

Sjá meira Sjá minna

Hugleiðingar hönnuða

Emma Prowse, hönnuður

„Mynstrið á VILDPERSILJA gardínum og púðaverum hefur verið mér ofarlega í huga talsvert lengi. Innblásturinn sótti ég í gömul hús á mínum heimaslóðum í Visby í Gotlandi. Þar eru fallegir garðar með rósum, ávaxtatrjám, vetrarstokkrósum, bergfléttu, fagurfíflum, morgunfrúm, fíkjutrjám og valhnotutrjám. Hvort sem þú vilt lífga upp á hlutlaust rými með skemmtilegum litum eða gera heimilið notalegra þá færir mynstrið þér tengingu við náttúruna.“

Efni

Blómleg endurvinnsla

Til að ná fram einstakri náttúrulegri áferðinni á VILDPERSILJA púðaverunum ákváðum við að nota bæði nýja og endurunna bómull ásamt endurunnum hör úr framleiðslu okkar á sængurverum, gardínum og púðaverum.


Bæta við vörum

Aftur efst
+

Vöruvöktun

Áætlað magn

Tilkynning hefur verið stillt

X