„Ég elska nútímalegan sveitastíl og langar að innleiða hann á mínu heimili. Hvar á ég að byrja?“ Þú ert á rétta staðnum. Innanhússhönnuðurinn Hans Blomquist, er atvinnumaður þegar kemur að nútímalegum sveitastíl og hér sérðu hversu auðvelt það er að ná þessu útlili fram á hvaða heimili sem er, á hagkvæman hátt.

Hagkvæmur sveitastíll

Hvítmáluð, notaleg og einföld leiguíbúð fyrir tvo einstaklinga, innréttuð í nútímalegum sveitastíl; hér getur þú séð hvernig Blomquist fór að – á hagkvæman hátt. Með nokkrum ráðum og brögðum, eins og að vinna með það sem þú átt nú þegar, getur þú fært þínu heimili sveitasjarma.

IKEA
IKEA
IKEA
IKEAalt
Hér sýnir Blomquist hvernig hægt er að færa heimilinu sveitastíl með hlutum sem þú átt nú þegar. Þú dregur bara fram það sem þú fannst á nytjamarkaðinum og bætir við glæsilegum vefnaði úr dásamlegu náttúrulegu efni. Lítið mál!

Gamalt og nýtt í bland

Það er mjög líklegt að þú eigir eitthvað akkúrat í þessum stíl því nútímalegur sveitastíll samanstendur af gömlum og nýjum hlutum. Á þessu heimili er nýjum smáhlutum, erfðagripum, antíkmunum og minjagripum blandað saman.
 

Skoða fleira úr notalegu íbúðinni

Taktu skref inn á annað heimili

Allt á einum vinnudegi


Aftur efst
+

Vöruvöktun

Áætlað magn

Tilkynning hefur verið stillt

X