Stígðu inn í ljóst og létt eldhús þar sem þú getur falið eldhúsáhöld í skáp með glansandi RINGHULT framhlið og haft fallegan borðbúnað til sýnis á bak við HEJSTA glerhurð. Aðlaðandi eldhúseyja bætir við hirslum og vinnuplássi og verður án efa vinsælasti staðurinn í eldhúsinu.

Grunnmynd af eldhúsi

L-laga meðalstórt eldhús í opnu rými. Uppsetningin skapar gott flæði þar sem þú færir þig auðveldlega á milli heimilistækja og vinnuborðs – virkar vel með eldhúseyju.

 

Ljómandi fallegt eldhús með góðri lýsingu

Notaðu lampa til að stilla réttu stemninguna og skapaðu notalegt andrúmsloft sem umbreytir eldhúsinu í hjarta heimilisins. Hafðu ljóskastara yfir vinnuborðinu og eldavélinni til að gera matreiðsluna bæði öruggari og skemmtilegri. Bættu um betur með snjalllýsingu og þá getur þú stýrt kösturunum með fjarstýringu eða IKEA Home smart appinu – kveikt og slökkt á þeim, deyft lýsinguna eða búið til stillingar sem henta verkefninu.

 


Stækkaðu eldhúsið með eyju

Ef þú vilt aðstoð við að elda skaltu hanna eldhús sem laðar að sér félagsskap. Eldhúseyja býður vinum og fjölskyldumeðlimum að taka þátt í eldamennskunni eða einfaldlega halda þér félagsskap á meðan þú eldar. Eyjan grípur augað með dökkri borðplötu með hnotuáferð og færir þér aukahirslu að auki.

Sígildur samhljómur

Háglans framhliðar, glerhurðir á stílhreinum stálskáp, vaskur og blöndunartæki úr ryðfríu stáli og borðplata með marmaraáferð – efni, áferð og litir í stíl gera þér kleift að skapa sígilt og afslappað eldhús. Skreyttu með hlutum í stíl við stemninguna eða tilefnið, til að mynda með vefnaðarvörum eða aukahlutum við vaskinn. Þannig getur þú reglulega frískað upp á eldhúsið á hagstæðan og einfaldan hátt.

 


Lárétt og lóðrétt eldhúshirsla

Skreyttu með hagnýtum hlutum. Settu mikilvæga minnismiða á SKÅDIS minnistöflu og láttu snaga um að halda á tómum innkaupapokum. MOSSLUNDA myndahilla kemur sér vel fyrir persónulega muni og eftirlætisbollana þína. Þú getur notið þess að hafa þá fyrir augum og nálgast þá auðveldlega þegar þú hellir upp á.

Skoðaðu vegghirslur

Nóg af hirsluplássi á bak við glansandi framhliðar

Háglans hvítir eldhússkápar skapa bjart og nútímalegt eldhús. Á bak við stílhreinar RINGHULT framhliðar er nóg pláss til að fela eldhúsáhöld og svo getur þú stillt upp eftirlætisborðbúnaðinum á bak við HEJSTA glerhurðir. Eldhúseyjan færir þér meira geymslupláss og laðar að hjálparkokka.

 


Steldu stílnum

Skoðaðu fjöldann allan af eldhúsum í ólíkum stíl- og verðflokkum.


Aftur efst
+

Vöruvöktun

Áætlað magn

Tilkynning hefur verið stillt

X