Grunnmynd af eldhúsi
L-laga meðalstórt eldhús í opnu rými. Uppsetningin skapar gott flæði þar sem þú færir þig auðveldlega á milli heimilistækja og vinnuborðs – virkar vel með eldhúseyju.
Ljómandi fallegt eldhús með góðri lýsingu
Notaðu lampa til að stilla réttu stemninguna og skapaðu notalegt andrúmsloft sem umbreytir eldhúsinu í hjarta heimilisins. Hafðu ljóskastara yfir vinnuborðinu og eldavélinni til að gera matreiðsluna bæði öruggari og skemmtilegri. Bættu um betur með snjalllýsingu og þá getur þú stýrt kösturunum með fjarstýringu eða IKEA Home smart appinu – kveikt og slökkt á þeim, deyft lýsinguna eða búið til stillingar sem henta verkefninu.
Stækkaðu eldhúsið með eyju
Ef þú vilt aðstoð við að elda skaltu hanna eldhús sem laðar að sér félagsskap. Eldhúseyja býður vinum og fjölskyldumeðlimum að taka þátt í eldamennskunni eða einfaldlega halda þér félagsskap á meðan þú eldar. Eyjan grípur augað með dökkri borðplötu með hnotuáferð og færir þér aukahirslu að auki.
Sígildur samhljómur
Háglans framhliðar, glerhurðir á stílhreinum stálskáp, vaskur og blöndunartæki úr ryðfríu stáli og borðplata með marmaraáferð – efni, áferð og litir í stíl gera þér kleift að skapa sígilt og afslappað eldhús. Skreyttu með hlutum í stíl við stemninguna eða tilefnið, til að mynda með vefnaðarvörum eða aukahlutum við vaskinn. Þannig getur þú reglulega frískað upp á eldhúsið á hagstæðan og einfaldan hátt.
Nóg af hirsluplássi á bak við glansandi framhliðar
Háglans hvítir eldhússkápar skapa bjart og nútímalegt eldhús. Á bak við stílhreinar RINGHULT framhliðar er nóg pláss til að fela eldhúsáhöld og svo getur þú stillt upp eftirlætisborðbúnaðinum á bak við HEJSTA glerhurðir. Eldhúseyjan færir þér meira geymslupláss og laðar að hjálparkokka.
Steldu stílnum