Lítið baðherbergi verður að athvarfi mínimalistans
Skapaðu persónulega heilsulind jafnvel þó plássið á baðherberginu sé af skornum skammti. Stílhreint glansandi yfirborð í bland við hlýlega liti og dökkar smávörur mynda afslappað andrúmsloft sem gerir baðherbergið að notalegu athvarfi.
Ekkert er meira afslappandi en gott skipulag
Hér er fallegt og nútímalegt baðherbergi þar sem þín vellíðan er í hávegum höfð. Lækkaðu birtuna á innbyggðu ljósinu á speglinum til að skapa notalegt andrúmsloft, vitandi það að allt er á sínum stað í skipulagsvörunum í skúffunum. Dragðu andann inn um nefið og út um munninn.
Skoðaðu allar baðinnréttingar
Alveg eins og að vera í heilsulind
Njóttu þín betur með notalegum og afslappandi aukahlutum.
Munaðurinn er í smáatriðunum
Til að umbreyta baðherberginu í notalegt athvarf bjóðum við náttúrunni inn með því að bæta við plöntum og náttúrulegu hráefni. Bættu um betur með mjúkum vefnaði og smáatriðum á borð við svartan hjólavagn sem býður upp á meira hirslupláss og þægindi.
Skoðaðu hjólavagna
Nútímalegt heimaspa
Njóttu þess að vera í vel skipulögðu umhverfi sem færir þér ró með nútímalegum útlínum og notalegum litum. Þegar allt ratar aftur á sinn stað er dásamleg tilfinning að snúa aftur heim og inn á snyrtilegt baðherbergi sem dekrar við þig.
Skoðaðu ÄNGSJÖN baðherbergi
Skoðaðu fleiri falleg baðherbergi