Ef þig langar í eldhús í hefðbundnum stíl með sterkan persónuleika þarftu ekki að láta rýmið stoppa þig, hvort sem það er þröngt eða öðruvísi í laginu. Allt sem þarf er smá hugmyndaflug og hugvitssemi og þú ættir að geta nýtt hvern einasta krók og kima á fallegan hátt.

Hirslur í stíl

Svartar HULTARP slár fyrir ofan eldavélina halda utan um allt sem heimakokkurinn gæti þurft. Þær koma sér vel þegar plássið er af skornum skammti og svo falla þær líka að stíl eldhússins.

 

Skoðaðu aukahluti í eldhús

Skoðaðu aukahluti í eldhús

Eldhúsáhöld fyrir gæðamatreiðslu

Rými sem vinnur með þér

METOD skáparnir koma í mörgum stærðum og því er hægt að aðlaga þá að rýminu, svo sem ef veggir og horn skaga út á óhefðbundinn hátt, og til þess að nýta lofthæðina. Með réttu innvolsi og hirslum er hægt að koma öllum borðbúnaði og áhöldum á góðan stað.

Hafðu sumt til sýnis

BODBYN framhliðarnar eru í hefðbundnum stíl og því tilvaldar ef þú vilt tímalaust eldhús. Hægt er að fá þær með gleri svo þú getir sýnt fallegan borðbúnað eða glös. Innbyggð lýsing gerir innihaldið enn fallegra.

 

Skoðaðu innbyggða lýsingu

Skoðaðu innbyggða lýsingu

Einstakt eldhús

Sniðið að þínum stíl, notendavænt og vel skipulagt. Eldhús þar sem fegurð, handverk og ástríðueldamennska haldast í hendur. Heimilislegt yfirbragðið passar vel við önnur rými heimilisins. Gráar BODBYN framhliðar með sniðskornum þiljum koma hefðbundnum stílnum vel til skila.

 

Skoðaðu BODBYN

Skoðaðu BODBYN

Steldu stílnum


Aftur efst
+

Vöruvöktun

Áætlað magn

Tilkynning hefur verið stillt

X