Leggðu frá þér núðlusúpuna og mættu beint í byssubardaga á nýja uppblásanlega leikjastólnum eða skiptu yfir í fjórða gír og taktu fram úr öllum á kappakstursbrautinni eftir að þú hefur ruggað barninu í svefn. BRÄNNBOLL línan auðveldar þér að fara úr einu í annað og flakka á milli raunheima og sýndarveruleika.

Veldu þinn leikmann

Finndu rétta teymið

Þetta tvíeyki eru þínir helstu stuðningsaðilar í tölvuleikjaheiminum. Felldu út púðana í BRÄNNBOLL leikjahægindastólnum og komdu þér vel fyrir á meðan þú verst innrás frá brjáluðum uppvakningum. BRÄNNBOLL hliðarborðið er þér til halds og trausts með slá á hliðunum sem kemur í veg fyrir að það drykkurinn detti niður í öllum hamaganginum.
BRÄNNBOLL
BRÄNNBOLL

Gátt í nýjan heim

Þegar BRÄNNBOLL leikjastöðin er ekki í notkun lítur hún út eins og skápur en svo þegar þú opnar hurðirnar þá blasir við þér allt annar heimur. Hún sér til þess að óvinirnir séu í augnhæð, býður upp á pláss fyrir leikjastól og verndar þitt annað sjálf – þú einfaldlega lokar hurðunum og leynilífið er vandlega falið öðrum.
BRÄNNBOLL
BRÄNNBOLL

Stóll sem rokkar

Hvernig fer hann að því? Sætið hangir niður á BRÄNNBOLL stólnum og því hallar hann, ruggar fram og til baka og til hliðar. Þannig færðu betri tilfinningu fyrir leiknum og tekur auðveldlega fram úr öðrum kappakstursbílum eða nærð hverjum einasta takti í laginu.

  Skoðaðu BRÄNNBOLL tölvuleikjahægindastól

Taktu tappann úr leikgleðinni

Hvort sem þú ert að skjóta risaeldhnöttum af bjargbrún eða hámhorfa á uppáhaldsþættina þá styður uppblásanlegi BRÄNNBOLL stóllinn við þig. Ef þú vilt láta fara enn betur um þig getur þú tekið innri púðann úr og notað hann undir fæturna eða sem borð fyrir snarlið.
BRÄNNBOLL
BRÄNNBOLL

Hasarhetjan

BRÄNNBOLL hillueiningin er á hjólum og rennur fimlega á milli staða með allar græjurnar tryggilega á sínum stað. Þú getur fjarlægt hillurnar eða sett þær þar sem þú vilt þannig að hlutirnir þínir passi fullkomlega. Fyrir aukastig þá eru hliðarnar með hirslutöflum, ólum, hólfum og plássi fyrir snaga og festingar til að geyma heyrnartól, stýripinna og snúrur. Skipulagið sigrar!

  Skoðaðu BRÄNNBOLL hillueiningu

Ofurhetja í dulargervi

BRÄNNBOLL karfan er frábær lítil hirsla en þessi sniðuga karfa lumar á fleiri ofurkröftum. Þegar þú tekur handföngin niður verður karfan að litlu borði í þægilegri hæð.
BRÄNNBOLL
BRÄNNBOLL

Hyllum hetjurnar

Leyfðu fígúrunum þínum að njóta sín og verðu þær fyrir ryki og óhreinum fingrum með BRÄNNBOLL sýningaskáp á vegg. Bættu um betur með LED ljósi og BRÄNNBOLL stöndum.
BRÄNNBOLL
BRÄNNBOLL

Bakhjarlarnir

BRÄNNBOLL línan býður upp á allt sem þarf til að bæta tölvuleikjaumhverfið á heimilinu, allt frá mottu sem auðveldar þér að hitta í óvinina, ekki borðið, að stuðningspúða sem veitir þægindi á meðan þú spilar. Finndu þína uppáhaldsleikfélaga.
BRÄNNBOLL

Fleiri hetjur fyrir heimilið


Aftur efst
+

Vöruvöktun

Áætlað magn

Tilkynning hefur verið stillt

X