Hvort sem þú ert að koma þér fyrir í stúdentaíbúð eða á heimavist þá höfum við allt sem þú þarft fyrir gott start. Allt frá notalegum rúmfatnaði og hagkvæmum hirslum til endingargóðs skrifborðs og nauðsynlegra eldhúsáhalda á hagstæðu verði – þú getur því auðveldlega sett þinn svip á rýmið.

Komdu þér vel fyrir í litlu rými

Þetta er ÄLVDALEN svefnsófinn – frábær svefnsófi sem nýtist þér á fjölbreyttan máta. Hann er svo miklu meira en bara sæti því hér getur þú hæglega borðað, sofið, lært og notið með vinum.

Skoðaðu svefnsófa

Lágmarkspláss, hámarksnýting

Það er ekki alltaf auðvelt að koma hlutunum sínum fyrir í sameiginlegu rými. En nett og sniðugt skrifborð með innbyggðri hillu og hentug hirsla hjálpa þér að koma skipulagi á hlutina þína á augabragði – og hvetur jafnvel herbergisfélagann til að gera slíkt hið sama!

Notalegt og heimilislegt – tékk!

Þótt rýmið sé lítið getur það samt verið heimilislegt. Bættu við rúmfötum í hvítum og bláum lit og skapaðu þér notalegt athvarf sem hentar þínum þörfum!

Búðu þig vel undir námið

Þitt rými, þín leið

Rýmið verður ekki heimilislegt fyrr en þú hefur sett þinn svip á það! Skemmtu þér því vel við að velja rúmfatnað, myndaramma, mottur, hirslur og annað sem fellur vel að þínum stíl. Þannig gerir þú húsnæði að heimili!

 

Komdu þér þægilega fyrir!

Undirbúðu þig fyrir notalegar stundir og vefðu pastellituðu PILTANDVINGE sængurverinu utan um þig fyrir framan sjónvarpið, á meðan þú lærir og fyrir góðan nætursvefn.

Allar helstu nauðsynjar

Nýtt upphaf þýðir nýjar upplifanir og áskoranir. Við höfum allar nauðsynjar í eldhúskrókinn og á baðherbergið, hvort sem þú ert að elda þér pasta eða undirbúa þig fyrir kvöldskemmtun með nýjum vinum.

Aftur efst
+

Vöruvöktun

Áætlað magn

Tilkynning hefur verið stillt

X