Sjálfbærara efni
VOXNAN
Sturtustöng með handsturtu,
krómhúðað

11.950,-

Energy efficiency class
VOXNAN
VOXNAN

VOXNAN

11.950,-
Vefverslun: Uppselt
Sett með hæðarstillanlegri sturtustöng og handsturtu með þægilegu streymi sem nær yfir mikið svæði. Innbyggð sía heldur vatnsflæðinu jöfnu og dregur úr vatns- og orkunotkun.
VOXNAN sturtustöng með handsturtu

Kraftmikil sturta fyrir hversdagslegan munað

Með VOXNAN, BROGRUND og VALLAMOSSE sturtum viljum við hjálpa þér að spara vatn og orku á meðan þú nýtur hlýrrar og notalegrar sturtu. Til að ná því þurftum við að finna út hvernig mætti ná réttu jafnvægi á milli vatnsþrýstingsins í sturtunum og vatnsnotkunar. Hvernig gátum við það? Nú með því að skella okkur í sundfötin og skrúfa frá.

Áður en við komumst svo langt – jafnvel áður en við litum á öll tæknilegu smáatriðin – tókum við viðtöl við fólk alls staðar að um baðherbergin þeirra og sturtuvenjur. Þá sáum við hversu mikilvægar þessar örfáu mínútur eru undir bununni. Sturtuferðin snýst ekki aðeins um þrif heldur einnig að slaka á og losa sig við stress – taka sér augnablik eða til að undirbúa sig fyrir nýjan dag. Þegar þú nuddar svefninn úr augunum í sturtunni hjálpar vatnsflæðið til. Vissir þú að aðeins 3% af öllu vatni á jörðinni er ferskvatn og meiri hluti þess er bundið í klaka? Þar sem takmarkað ferskvatnið er nauðsynleg uppspretta fyrir allt líf verðum við að fara vel með það.

Verkfræði sturtunnar

Hér kemur sturtuúrvalið til sögu. Við vildum einfalda fólki að spara vatn og orku og það tókst okkur með snjallari tækni, hitastýrða blöndunartækinu og sturtuarminum. Antony Smith, sem var hluti af teyminu við framleiðslu á sturtunum, hefur unnið með blöndunartæki og sturtur frá því að hann útskrifaðist úr háskólanum fyrir þó nokkru síðan. Hann lýsir hitastýrðu blöndunartæki sturtunnar sem vél hennar. „Það er blöndunartækið sem tryggir að það er jafnt flæði og rétt hitastig." Antony útskýrir að það er blöndunartækið sem kemur í veg fyrir að hitastigið á vatninu breytist þó einhver skrúfi frá vatni í eldhúsinu. Þú getur haldið áfram að syngja í sturtunni án þess að hafa áhyggjur – og án þess að brenna þig eða fá ískalda gusu yfir þig. Hitastýrða blöndunartækið sem teymið þróaði er einnig með 38°C öryggishnappi og því er eru engar líkur á að þú eða barnið þitt hækkið óvart hitann.

Sturtupróf í sundfötum

Annað lykilatriði við að búa til bæði þægilegar og sjálfbærar sturtur er lítil skinna sem situr í sturtuarminum sem kemur reglu á vatnsflæði. Áskorunin fyrir teymið var að finna rétt jafnvægi á milli vatnsþrýstings og flæðis, þannig að hægt sé að nota minna af vatni án þess að það dragi úr þægindum. Það var aðeins ein leið fyrir teymið að sjá hvort þeim hafði heppnast ætlunarverkið: „Þegar við fórum til birgis í Kína til að prófa fyrstu frumgerðina tókum við með okkur sundfötin," segir Antony brosandi. Hann prófaði mismunandi stillingar á vatnsflæði í sundfötunum sínum. „Það er misjafnt hvernig fólk vill hafa sturturnar sín og við viljum að hægt sé að laga sturturnar að smekk fólks. Að auki getur það notið sturtunnar enn betur þar sem hún sparar bæði vatn og orku."

Sjá meira Sjá minna

Energy and Resources

Vissir þú að með því að nota vatn skynsamlega getur þú lækkað hitaveitureikninginn og tekið þátt í að draga úr loftslagsbreytingum.

Heitt vatn til upphitunar er 25% af orkunotkun heimilisins. Notkun vatns dregur á skilvirkan hátt úr orkunotkun og um leið úr kolefnislosun. Leitaðu eftir orkumerkingu til að hafa áhrif. Merkimiðinn er með litakóðað kerfi sem sýnir hversu mikla orku og vatn varan notar. Grænar vörur nota minna en rauðar. Nánari upplýsingar er að finna á www.uwla.eu.

Efni

Hvað er ABS-plast?

ABS-plast er sterkt og stöðugt efni með gljáandi yfirborð – og það hentar vel í ýmsa hversdagslega hluti eins og hnífaparaskúffur, eldhúsáhöld, tannburstaglös og snaga á baðherberginu. ABS-plast er unnið úr olíu, sem er óendurnýjanlegt hráefni, en við vinnum stöðugt að framþróun og notum sífellt meira af endurunnu ABS-plasti í vörurnar okkar. ÞAð er mikilvægt skref í átt að markmiði okkar að nota eingöngu plast sem er endurunnið eða unnið úr endurnýjanlegum auðlindum.

Samantekt

Kraftmikil sturta fyrir daglegt dekur

Á meðan þú stendur í sturtunni á morgnanna og nuddar þreytuna úr augunum er líklegt að þú takir vatninu sjálfsögðu. Ferskvatn heimsins er þó af skornum skammti og við þurfum að varðveita það. Þess vegna hönnuðum við sturturnar okkar með búnaði sem gerir þér kleift að spara vatn og orku. Galdurinn var að finna rétt jafnvægi á milli vatnskrafts og vantsnotkunar, þannig að þú notir minna vatn án þess að fórna góðri sturtuferð.

Eiginleikar

Sturta eftir þínu höfði

Sturtuhausarnir og handsturturnar okkar veita þér þau þægindi sem henta þér þar sem sturturnar eru með eina, þrjár eða fimm stillingar. Viltu jafnt flæði sem nær yfir mikið svæði; kraftmikið flæði; nudd eða léttan úða. Þú getur einnig blandað saman stillingum. Öll sturtutækin búa yfir búnaði sem dregur úr vatnsnotkun og gefur þér jafnt flæði, jafnvel þegar vatnsþrýstingurinn breytist.

Coordination

Allt sem þú þarfnast fyrir frábæra sturtuferð

Við bjóðum upp á gott úrval af öllu sem þú þarft fyrir notalega sturtuferð. Blöndunartæki í sturtur eru ávallt köld viðkomu. Sturtuhausinn og handsturtan eru með ýmsum stillingum og þau eru með þrýstijöfnun sem dregur úr vatns- og orkunotkun um allt að 30%. Þú finnur aukahluti á baðberbergið sem koma skipulagi á brúsa og flöskur og eru í stíl við sturtutækinn. Að auki bjóðum við upp á tíu ára ábyrgð á blöndunartækjum og þriggja ára ábyrgð á stangir, slöngur, sturtuhausa og handsturtur.

Sjálfbærara líf heima

Þvoðu þér með hreinni samvisku

Allar handsturtur og sturtuhausarnir okkar eru með smáum þrýstijöfnunarbúnaði (PCW) sem dregur úr vatnsflæði en heldur þrýstingi. Þetta er hluti af okkar viðleitni til að varðveita vatn. Við ætlum okkur að verða vatnsvænleg fyrir 2020, sem þýðir að við munum varðveita meira vatn en við notum. Því skiptir hver dropi máli í vatnssparnaði okkar.


Bæta við vörum

Aftur efst
+

Vöruvöktun

Áætlað magn

Tilkynning hefur verið stillt

X