LILLABO
Rafmagnslest

1.690,-

Magn: - +
LILLABO
LILLABO

LILLABO

1.690,-
Vefverslun: Til á lager
Draumur fyrir litla lestarstjóra – lestin er rafhlöðuknúin og stýrð með hnappi sem er ofan á lestinni. Hún getur einnig farið aftur á bak og er með ljós sem lýsir leiðina áfram. Allir um borð – fulla ferð áfram!
LILLABO rafmagnslest

Lest sem er knúin áfram af ímyndunaraflinu

LILLABO viðarlestin er nú orðin nútímalegri og með nýjum hlutum, heldur áfram að auðga ímyndunarafl og hvetja til skapandi leiks. Það er gaman þegar allur aldur getur leikið sér saman og búið til nýja heima á sama tíma og hreyfifærni er örvuð og verkefni eru leyst. Það er einfaldlega leiktími í sinni bestu mynd.

Lestin kemur inn í bæinn með varning, sleppir nokkrum vögnum og heldur svo áfram í fleiri ævintýri. Kynslóðir barna hafa leikið sama leikinn: umbreytt gólfinu í stað þar sem járnbrautarteinar þjóta um í ævintýraheimi þar sem allt er mögulegt. Viðarlestirnar hafa verið framleiddar svona lengi vegna þess að þær henta í mismunandi leiki. Bodil Fritjofsson hannaði LILLABO leikfangalínuna, þar á meðal nýja lestarsettið. „Leikur með lestir er skapandi því barnið byggir lestarteina og umhverfið og er einnig hlutverkaleikur því barnið ímyndar sér að lestin sé raunveruleg“ segir Bodil sem telur að margir foreldrar séu ánægðir með að lestarsettið sé úr gegnheilum sjálfbærum við.

Mætum þörfum barnanna

Hvernig veit Bodil að viðarlestir og önnur viðarleikföng séu ennþá vinsæl hjá börnum í dag? Stór hluti slíkra upplýsinga kemur frá Children's School sem er deild í IKEA sem er eins konar upplýsingabanki með leiðbeiningum um allt sem viðkemur börnum. Jessica Bondesson vinnur þar og útskýrir starfsemi Children's School. „Við viljum hjálpa starfsfólki okkar að skilja þarfir og þroska barna svo IKEA geti hannað góðar og öruggar vörur fyrir börn.“ Jessica er þeirrar skoðunar að LILLABO lestirnar séu viðeigandi nú á þessum tæknivæddu tímum. Leikföng örva ímyndunaraflið, auka rökhugsun og félagsfærni. „Árið 2015 gerðum við könnun á leik barna, Play Report, sem leiddi í ljós að börn um allan heim hafa svipaðar þarfir og að þau vilja gjarnan leika við foreldra sína.“ Foreldrar eru að mestu leyti sammála en samkvæmt könnuninni eru þeir þeirrar skoðunar að fólk eigi að leika sér meira og vinna minna.

Nýir tímar kalla á nýjar lestir

LILLABO hefur verið í vöruúrvali okkar síðan á tíunda áratug 20. aldar. Nýjar og nútímalegar vörur hafa bæst við, þar á meðal hraðlest og litríkar vöruflutningalestir. Börn eiga að geta þekkt lestirnar úr umhverfi sínu, jafnvel þótt leikfangalestirnar séu úr við. Hversu mikið nammi kemst í vöruflutningalest? Hversu þungan farm getur eimreiðin dregið yfir brúna? Með því að uppfæra vörurnar í línunni vilja Bodil og samstarfsfélagar hennar fjölga leikstundum og virkja sköpunarkraftinn. „Lest með ljósi sem gengur fyrir rafhlöðum er hugsuð til þess að hvetja aðeins eldri börn til að leika með LILLABO. Fólk á öllum aldri getur notið þess að skapa ævintýraheim.“

Sjá meira Sjá minna

Eiginleikar

Lest fer um ímyndunaraflið

Kynslóðir barna hafa gert það sama: Breytt gólfinu í landslag þar sem lestarteinar hlykkjast um ævintýraheim og allt er mögulegt. LILLABO lestin gengur fyrir rafhlöðum og kveikt er á henni með takka ofan á lestinni. Með ímyndunaraflið að vopni geta ungir sem aldnir eytt löngum stundum í leik sem bæði æfir fínhreyfingar og þjálfar rökhugsun barna. Leiktíminn í sinni bestu mynd.

Efni

Hvað er ABS-plast?

ABS-plast er sterkt og stöðugt efni með gljáandi yfirborð – og það hentar vel í ýmsa hversdagslega hluti eins og hnífaparaskúffur, eldhúsáhöld, tannburstaglös og snaga á baðherberginu. ABS-plast er unnið úr olíu, sem er óendurnýjanlegt hráefni, en við vinnum stöðugt að framþróun og notum sífellt meira af endurunnu ABS-plasti í vörurnar okkar. ÞAð er mikilvægt skref í átt að markmiði okkar að nota eingöngu plast sem er endurunnið eða unnið úr endurnýjanlegum auðlindum.


Bæta við vörum

Aftur efst
+

Vöruvöktun

Áætlað magn

Tilkynning hefur verið stillt

X