25 ára ábyrgð. Ábyrgðarskilmála er að finna á vefnum okkar, IKEA.is.
Hver borðplata er einstök og mismunandi mynstur á viðnum og náttúrulegar litabreytingar auka þokka viðarins.
Eik er afar sterkur og endingargóður harðviður með áberandi viðarmynstri. Hún verður dekkri og fallegri með aldrinum og fær á sig gullbrúnan undirtón.
Efsta lag borðplötunnar er úr eik, slitsterku og náttúrulegu efni sem hægt er að pússa með sandpappír og meðhöndla eftir þörfum.
Til að auðvelda uppsetningu og lágmarka viðhald hefur borðplatan verið meðhöndluð með vaxolíu.
Með lagskiptri uppbyggingu verður borðplatan stöðugri, ekki eins viðkvæm fyrir raka og þar með ólíklegri en gegnheill viður til að svigna, klofna eða springa.
Þú getur sagað borðplötuna í æskilega lengd og límt yfir sárin með kantlistanum sem fylgir.
Borðplatan er gerð úr spóni og efsta lagið er úr gegnheilli eik. Þessi aðferð gerir okkur kleift að nota minni við í framleiðslunni.