Þú getur stillt hallann og læst honum til að laga stólinn að mismunandi líkamsstöðu á meðan þú situr.
Hjólin eru með bremsubúnaði sem heldur stólnum á sínum stað þegar þú stendur upp og losar um hann þegar þú sest niður.
Þéttur hágæðasvampur veitir þér þægindi um ókomin ár.
Þú situr þægilega þar sem hægt er að stilla hæð stólsins.
Hjólin eru gúmmíklædd og renna því mjúklega á hvaða gólfi sem er.
Stóllinn styður vel við bakið á þér og hjálpar þér að sitja rétt þar sem hægt er að stilla bak í fimm mismunandi hæðum og það er með innbyggðum stuðningi við mjóbakið.
Þú getur stillt hæð höfuðpúðans og fært hann fram og aftur til að fá stuðning þar sem þú þarft á að halda hvort sem þú ert að spila eða taka þér pásu.
Þegar þú þarft smá stund til að slaka á getur þú hallað þér til hliðar upp að höfuðpúðanum.
Hægt er að stilla hæð og staðsetningu armanna. Þeir fylgja einnig hreyfingum handleggjanna á meðan þú spilar með því að færast fram og aftur, sem dregur úr álagi á hendur og axlir.