Spanhellur eru mjög orkunýtnar, hraðvirkar og nákvæmar þar sem spantæknin beinir orkunni beint í segulmagnað eldunarílátið.
Spanhellurnar færa hitann beint í botninn á pönnunni og kólna hratt niður þegar pannan er fjarlægð. Þannig getur þú auðveldlega stýrt hitanum þegar þú eldar og kemur í veg fyrir að matur brenni við pönnuna og hellurnar.
Viftan aðlagast sjálfkrafa að hitastigi helluborðsins – því hærri sem hitinn er því meira gleypir hún í sig.
Enginn aukakostnaður. 5 ára ábyrgðin er innifalin í verðinu! Nánari upplýsingar má finna í ábyrgðarskilmálunum.
Fitusían má fara í uppþvottavél. Með því að þrífa hana reglulega viðheldur þú góðu loftflæði svo gufur hverfa fljótt.
Fjórar hraðsuðustillingar – ein fyrir hvert svæði – gefa þér aukinn hita þegar þú þarft á honum að halda. Hvort sem þú vilt flýta fyrir suðunni, snöggsteikja kjöt eða keppast við að metta svanga maga.
Þrifstillingin tryggir öryggi með því að læsa tökkunum – svo þú getir þurrkað upp það sem hellist niður án þess að hækka óvart hitann.
Sérstakur tímastillir fyrir hvert svæði – svo ekkert brenni við á meðan þú sinnir öðrum pottum, þrifum, heimanámi eða góðu spjalli.
Barnalæsing kemur í veg fyrir að forvitin börn ýti á takka og brenni sig – hugarró fyrir foreldra og engin óvænt uppátæki fyrir litlar hendur.
Pásustillingin gerir þér kleift að taka stutt hlé, til dæmis þegar dyrabjallan hringir eða barnið þitt þarfnast þín. Þannig kemur þú í veg fyrir að það sjóði upp úr eða að maturinn brenni við!
Þetta glæsilega og fjölhæfa helluborð endurskilgreinir eldhúshönnun. Þú getur eldað eins og atvinnumaður fyrir hvaða tilefni sem er með vinum og fjölskyldu – og heimilislífið verður enn skemmtilegra.
Lífleg eldhúseyja, sólríkur staður við glugga eða stílhrein uppsetning við vegg – helluborð með innbyggðri viftu gefur þér frelsi til að hanna eldhúsið eins og þú vilt. Eldaðu með vinum og njóttu – engin fyrirferðarmikill háfur sem truflar samtalið.
Ef aðstæður heima hjá þér bjóða ekki upp á að hafa helluborð með útblæstri, dugar góð kolasía líka!
Helluborð með hreinum, beinum brúnum og rauðlýstu stjórnborði svo þú getir auðveldlega stillt hverja hellu – ýttu bara á + til að hækka hitann eða – til að lækka hann.