5 ára ábyrgð. Ábyrgðarskilmála er að finna á vefnum okkar, IKEA.is.
Stilling til að halda heitu gerir þér kleift að halda matvælunum heitum án þess að þau ofeldist og brenni.
Þægilegar útdraganlegar brautir auðvelda þér að setja í ofninn og taka úr honum á öruggan hátt.
Blásturinn dreifir hitanum fljótt og vel um allan ofninn og gerir þér kleift að elda og baka marga rétti í einu án þess að það hafi áhrif á bragð.
Auðvelt að setja upp í þægilega vinnuhæð, í grunnskáp eða háan skáp.
Brauð- og pizzustilling gera brauðmetið fallega brúnt að utan og pizzubotninn stökkan.
Undir- og yfirhiti til að fá stökka áferð á ofnrétti og hægelda pottrétti.
Ofnhurð með barnalæsingu bætir öryggi í eldhúsinu.
Einstaklega rúmgóður ofn með pláss fyrir fimm grindur sem tryggir að nægt pláss sé fyrir það sem þú vilt elda.
Þú getur auðveldlega valið bestu grillstillinguna til að elda þunnar kjötsneiðar og grænmeti eða til að brúna gratín og steikur.
Bakstursstilling gerir það sem þú bakar sérstaklega mjúkt og bragðgott.
Hraðhitun hitar ofninn fljótt.
Þegar gufu og heitu lofti er blandað saman færðu ákjósanlegt raka- og hitastig til að matvælin verði mjúk og safarík að innan og stökk og brúnuð að utan.
Forstilltar eldunarstillingar auðvelda þér að velja réttar stillingar fyrir mismunandi matvæli og uppskriftir.
Þú getur geymt og uppfært uppáhaldsuppskriftirnar þínar í minni ofnsins, ásamt réttu hitastigi og eldunartíma.
Snertirofinn og stóri, þægilegi takkinn eru báðir vinnuvistvænir og auðvelda bæði notkun og þrif á ofninum.
Sérstakar stillingar gera þér kleift að þurrka og varðveita matvæli, sótthreinsa ílát og stýra hvernig deig hefast.
Matvælin halda bragði og lit við gufueldun ásamt því að viðhalda næringarefnum, steinefnum og vítamínum.
Gufuhreinsunin leysir upp brunabletti, fitu og matarleifar svo auðvelt sé að strjúka óhreinindum burt með svampi.
Passar fullkomlega með MÅGEBO örbylgjuofni.