5 ára ábyrgð. Ábyrgðarskilmála er að finna á vefnum okkar, IKEA.is.
Stilling til að halda heitu gerir þér kleift að halda matvælunum heitum án þess að þau ofeldist og brenni.
Snertirofinn auðveldar bæði notkun og þrif á ofninum.
Þægilegar útdraganlegar brautir auðvelda þér að setja í ofninn og taka úr honum á öruggan hátt.
Blásturinn dreifir hitanum fljótt og vel um allan ofninn og gerir þér kleift að elda og baka marga rétti í einu án þess að það hafi áhrif á bragð.
Auðvelt að setja upp í þægilega vinnuhæð, í grunnskáp eða háan skáp.
Brauð- og pizzustilling gera brauðmetið fallega brúnt að utan og pizzubotninn stökkan.
Auðvelt að þrífa þar sem ryðfría stálið er meðhöndlað með kámvörn.
Undir- og yfirhiti til að fá stökka áferð á ofnrétti og hægelda pottrétti.
Ofnhurð með barnalæsingu bætir öryggi í eldhúsinu.
Með innbyggðum kjöthitamæli með hitaskynjara er hægt að elda allar tegundir af kjöti fullkomlega án þess að þurfa að fylgjast með elduninni.
Einstaklega rúmgóður ofn með pláss fyrir fimm grindur sem tryggir að nægt pláss sé fyrir það sem þú vilt elda.
Þú getur auðveldlega valið bestu grillstillinguna til að elda þunnar kjötsneiðar og grænmeti eða til að brúna gratín og steikur.
Bakstursstilling gerir það sem þú bakar sérstaklega mjúkt og bragðgott.
Hraðhitun hitar ofninn fljótt.
Þegar gufu og heitu lofti er blandað saman færðu ákjósanlegt raka- og hitastig til að matvælin verði mjúk og safarík að innan og stökk og brúnuð að utan.
Þú getur geymt og uppfært uppáhaldsuppskriftirnar þínar í minni ofnsins, ásamt réttu hitastigi og eldunartíma.
Hraðgrill gerir þér kleift að grilla, brúna og elda stærri rétti og steikur í gegn.
Sérstakar stillingar gera þér kleift að þurrka og varðveita matvæli, sótthreinsa ílát og stýra hvernig deig hefast.
Gufueldun heldur næringu, vítamínum og steinefnum í matnum. Matvælin haldast bragðgóð og þorna ekki.
Gott úrval af eldunarkerfum. Þú velur einfaldlega matinn sem þú ætlar að elda og ofninn velur bestu stillinguna fyrir réttinn.
Ein ofngrind og ein ofnplata úr ryðfríu stáli fylgja með gufuofninum.
Einfalt er að halda ofninum hreinum því gufuhreinsunin fjarlægir brennd matvæli, fitu og bletti.
Passar fullkomlega með KULINARISK örbylgjuofni.
Hurðin er með ljúfloku og skellist því ekki með látum og tryggir á sama tíma að matvælin hristist ekki til.