10 ára ábyrgð. Ábyrgðarskilmála er að finna á vefnum okkar, IKEA.is.
Eldhúsið er hannað fyrir ferðaspanhellu og/eða örbylgjuofn. Taktu tækið bara úr sambandi og settu það til hliðar til að búa til meira pláss fyrir matargerðina.
Þynnri borðplata með beinum köntum og plasthúðuðu yfirborði með marmaraáferð passar í nútímaleg og hefðbundin eldhús. Styttu plötuna í lengd sem hentar þér og notaðu meðfylgjandi kantlista á kantana.
SKYDRAG ljósasett er hannað fyrir ENHET línuna – tilvalið bæði sem borðlýsing og til að búa til ákveðna stemningu í eldhúsinu. Með TRÅDFRI spennubreyti og þráðlausum dimmi getur þú auðveldlega kveikt, slökkt og stýrt ljósmagninu.
GUBBARP hnúðar og höldur úr hvítu plasti með einföldu og nútímalegu útliti sem passar með mismunandi hurðum og skúffuframhliðum.
Bættu við ENHET aukahlutum til að nýta hirsluna til hins ýtrasta. Engin þörf á að bora! Seldir sér.
FYNDIG vaskur úr ryðfríu stáli, sem er hreinlegt, endingargott og slitsterkt efni.
Hvítar hurðir og skúffuframhliðar færa rýminu ferskt og bjart yfirbragð og allir litir regnbogans passa með! Fallegt og sígilt.
Einstaki blindnaglinn auðveldar samsetningu og festingarnar eru varla sjáanlegar.
Hægt er að bæta við HÅLLBAR flokkunarfötum. Með því að hafa flokkunarfötur undir vaskinum kemur þú upp snyrtilegri flokkunaraðstöðu.
Eftir þínu höfði! Breyttu um lit á hillueiningunum og útlit á borðplötunni og framhliðunum til að búa til nútímalegt, sígilt, stílhreint eða litríkt útlit sem höfðar til þín.
Grunnskápur fyrir vask er hentugur staður til að flokka rusl og að aftan er pláss fyrir rör og lagnir.
Bættu við ferðaspanhellu til að búa til góða eldunaraðstöðu. Auðvelt að koma fyrir í skáp eða hengja á snaga þegar hún er ekki í notkun, til að rýma til á borðinu fyrir aðra hluti. Seld sér.
ENHET slá fyrir snaga, ENHET snagar og SKATTÅN ílát auðvelda þér að nýta hvern sentímetra undir opinni ENHET hillueiningu fyrir diskaþurrkur, hnífapör og áhöld.
ENHET hangandi hilluinnlegg gerir þér kleift að nýta betur plássið á milli hillna í ENHET hillueiningum. Tilvalið til að koma skipulagi á hluti á borð við espressóbolla, krukkur, hárþurrkur eða handklæði.
ENHET fætur eru 12,5 cm og þeir setja grunnskápinn í þægilega hæð og bæta stöðugleika hans.
Svæðið við hlið skápsins hentar fyrir þvottavél ef þú vilt búa til þvottaaðstöðu með hentugri hirslu fyrir þvottaefni.
Grunnskápur með tvær hurðir sem þú getur notað undir skálar og lítil heimilistæki.
Bættu við skipulagshirslum á borð við kassa og diskastand til að deila niður plássinu, skipuleggja og fullnýta rýmið í skápunum, selt sér.
ENHET snúningshilla veitir þér þægilegt og auðvelt aðgengi að smáhlutum á borð við lykla, bætiefni og kryddstauka. Hún festist auðveldlega á opnar hillueiningar úr ENHET línunni.
Opin vegghilla nýtir vel plássið yfir vaskinum. Tilvalinn staður fyrir borðbúnað, áhöld og aðra hluti sem þú notar oft.