Rennihurðir veita þér meira pláss í kringum húsgögnin og þú getur valið að sýna eða fela hlutina þína.
Rennihurðir taka ekkert pláss þegar þær eru opnaðar og henta því vel í minni rými.
Sterk gegnheil fura í IVAR hirslunum er með náttúrulega breytilegt viðarmynstur og litbrigði og því er hvert húsgagn einstakt.
Ómeðhöndlaður viður er endingargott náttúrulegt efni sem er enn slitsterkari þegar búið er að olíu- eða vaxbera hann.
Þú getur gert húsgögnin þín enn persónulegri með því að bæsa þau eða mála í uppáhaldslitnum þínum.
Ef þig vantar meira pláss getur þú auðveldlega bætt við bilum og hillum og stækkað samsetninguna.
Filthillan er með litlum hólfum fyrir smáhluti.
Opin hólf á filthillunni gera þér kleift að ná auðveldlega í hlutina.