HÅLLBAR föturnar staflast til að spara pláss. Staflaðu fötum í sömu stærð eða settu minni fötur ofan í stærri fötur.
Föturnar geta staðið einar hvar sem er á heimilinu eða inn í skáp eða skúffu.
Föturnar haldast á sínum stað í MAXIMERA skúffu með HÅLLBAR údraganlegri grind fyrir flokkunarfötur í skáp eða HÅLLBAR stuðningsgrind fyrir flokkunarfötur, og þú færð góða yfirsýn og aðgang.
Fatan er með rúnnuðum hornum fyrir auðveldari þrif.
Það er auðvelt að losa fötuna því hún er með niðurfellanlegu handfangi.
Hringurinn efst á fötunni felur ruslapokann og heldur honum á sínum stað. Hægt er að fjarlægja hann fyrir þrif eða ef hann er ekki notaður.
HÅLLBAR föturnar eru hannaðar til að koma til móts við mismunandi flokkunarþarfir. Þær henta vel til flokkunar á bylgjupappa, plasti, pappír, flöskum, gleri, áldósum, umslögum og fjölpósti.
Lok fylgir sem bætir aðgengi að fötunum, jafnvel þegar þeim er staflað. Er með lömum og hægt að opna á tvenns konar vegu.
Lok sem felur úrganginn fylgir með. Ef þú vilt hafa föturnar opnar eða þarft að þrífa þær er auðvelt að taka lokið af.
Þú getur fest límmiðann sem fylgir við fötuna til að merkja það sem þú ert að flokka. Teiknaðu eða skrifaðu á límmiðana til að taka allan vafa af því hvað á að fara í fötuna.