LED ljósaperur eru orkunýtnar og endast lengi með endingartíma sem nær 15.000 klukkustundum.
LED ljósaperur fást með mismunandi ljóshitastigi sem gerir birtuna ýmist hlýrri eða kaldari. Þessi tiltekna ljósapera gefur frá sér hlýtt ljós (2.200 Kelvin).
Litendurgjafargildi (CRI) ljósaperu gefur til kynna hversu vel ljósið sýnir liti á réttan hátt. Gildi yfir 80 er gott og í nálægð við náttúrulega birtu. Þessi ljósapera er með gildið 80.
LED ljósaperan gefur frá sér sömu hlýlegu birtuna og hefðbundin 16 W ljósapera – en án þess að flökta eða gefa frá sér hljóð. Það er einmitt það sem þú þarft til að skapa notalega stemningu í rýminu.