Hentar öllum gerðum af helluborðum, þ.m.t. spanhelluborðum.
Lok úr ryðfríu stáli endurkastar hitanum niður í pottinn sem lætur suðuna koma fyrr upp.
15 ára ábyrgð. Ábyrgðarskilmála er að finna á vefnum okkar, IKEA.is.
Þú getur sett pottinn með lokinu bæði á helluborð og inn í ofn og síðan á matarborðið.
Botninn er úr burstuðu ryðfríu stáli sem virkar vel á spanhellu.
Brúnin er hönnuð til þess að það leki ekki þegar þú hefur hellt vökvanum úr.
Koparinn er með grófri og áþreifanlegri áferð sem færir eldhúsinu mýkt ásamt því að leiða hita jafnt og vel.
Matvælin speglast fallega í glansandi yfirborðinu sem gerir matargerðina enn skemmtilegri.
Það er gott jafnvægi í lokinu svo þú getur látið það það liggja á brúninni ef þú vilt hafa pottinn hálfopinn.
Hægt er að stafla eldunarílátunum til að spara pláss í skápunum.
Innra byrðið er úr endingargóðu ryðfríu stáli sem gerir pottinn auðveldan í notkun og þrifum.
Kopar dökknar og missir náttúrulegan gljáa með tímanum, þú getur því valið hvort þú viljir láta hann safna fallegri spanskgrænu eða pússað hann upp og látið eldhúsáhöldin glansa eins og þau séu ný.
FINMAT línan sem hönnuð er af Ilse Crawford inniheldur einföld og falleg eldunaráhöld úr kopar og ryðfríu stáli sem veita þér innblástur við matargerðina.
Veldu eitt eða fleiri eldhúsáhöld úr FINMAT línunni – þau eru hönnuð til þess að prýða hvert annað og hjálpa þér við að ná nýjum hæðum í matseldinni.
Hengdu eldhúsáhöldin upp svo þau fái að njóta sín. Eldhúsið fær faglegt og hefðbundið yfirbragð.