IKEA vinnur með félagslegum fyrirtækjum víðs vegar um heim til þess að hanna einstakar vörur og skapa störf fyrir fólk sem þarf mest á því að halda.
Þessi vara er framleidd af Classical í Bangladesh – félagslegu fyrirtæki sem skapar störf og stöðuga innkomu fyrir konur á dreifbýlum svæðum með framleiðslu á vörum úr júta.
Júta er endingargott, endurvinnanlegt efni með náttúrulegum litbrigðum.
Körfurnar eru bæði fallegar og handhægar og henta vel fyrir allt frá brauði að skartgripum eða fylgihlutum.
Fer vel á borði eða hillu.